Hannes Hólmsteinn Gissurarson prófessor hefur verið beðinn um að rannsaka orsakir bankahrunsins af fjármálaráðuneytinu. Það er vel. Hannes er eldklár, flokkshollur og lítur út eins og Indiana Jones. Við viljum enga komma í karlmannsverk.
Ætlað er að rannsókninni ljúki sumarið 2015 en við þurfum varla að bíða svo lengi með Hannes bak við gagnrýnið stækkunargler hins hlutlausa rannsakanda.
Hannes nefnilega veit hvað olli bankahruninu nú þegar og hefur ritað um það mörg orð. Svo mörg reyndar að hann hefur varla gert mikið annað síðan eftir hrun. Í stuttu máli sagt, svona ef ég dreg niðurstöður prófessorsins saman, þá var meginorsök bankahrunsins ekki Davíð Oddsson.
Sáraeinfalt í rauninni. Allt sem Davíð Oddsson gerði var rétt en vondir menn sem voru ekki Davíð Oddsson eyðilögðu allt.
En Davíð reyndi að vara við. Já, hann margvaraði okkur við en við bara hlustuðum ekki á hann.
Davíð Oddsson er að mörgu leyti eins og Jesús Kristur. Þú þarft að hlusta á hann, annars er voðinn vís. Meðtaka hann í hjarta þitt og gera að leiðtoga lífsins. Það hefur Hannes gert. Því er ég ekki í nokkrum vafa um að hann leysi þetta litla verkefni á skjótan hátt.
Maðurinn sem útskýrði svo vel snilldina á bak við velgengni Íslendinga 2007 fer létt með að útskýra fyrir okkur af hverju við pompuðum á bossann eins og barn að læra að labba árið 2008.
Hannes Hólmsteinn, maðurinn sem er svo klár að hann fær stöðu við Háskóla Íslands án þess að vera metinn hæfur í hana, mun leiða okkur í allan sannleikann í þessu máli. Vonandi man hann bara eftir því að geta heimilda. Þótt þær heimildir verði aðeins viðtöl við ritstjóra Morgunblaðsins.