Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Vitrænt innlegg í óhóflega umræðu

$
0
0

Þingflokksformaður Framsóknar, sem hafði uppi stórfurðulegan málflutning um amerísku heildsölukeðjuna Costco, óskaði eftir vitrænni og hóflegri umræðu um málið, enda þótt hún hafi ýtt umræðunni úr vör, með þvílíkri forræðishyggju og afturhaldssemi að undrun sætir.

Þar sem ég hef verið viðskiptavinur Costco keðjunnar s.l. einn og hálfan áratug, að vísu ekki í Bandaríkjunum heldur í Bresku Kolumbíu í Kanada, tel ég það “borgaralega skyldu” mína að leggja til eitt og annað vitrænt í umræðuna.

Aðstæður í Bresku Kolumbíu eru að því leyti mjög líkar íslenskum aðstæðum að ekki er leyfilegt að selja áfengi í matvörubúðum og innflutningur á bandarísku nautakjöti er óheimill.

Þess vegna er alveg út í hött að blása málið upp á þann veg, að forráðamenn Costco, geri hinar og þessar kröfur gegn því að opna verslun á Íslandi. Líkt og allir stjórnendur fyrirtækja gera, eru settar fram ýtrustu kröfur og síðan eru gerðar málamiðlanir.

Costco er með módel sem svínvirkar með ákjósanlega markaðsstærð um 200 þúsund íbúa.

Costco Heildsölur, eru afar vel reknar, mikil starfsánægja ríkir og lítil starfsmannavelta. Framsetning vara er einföld og ódýr, vörur í hæsta gæðaflokki yfirleitt á lægsta verði. Skilareglur eru viðskiptavænar.

Fram kom hjá talsmanni verslunarinnar að meðalálagning er 14%, fjórtán prósent.

Smáverslanir, fyrirtæki, veitingahús kaupa öll sín aðföng hjá Costco, enda geta minni fyrirtæki ekki náð viðlíkri samningsstöðu í sínum innkaupum. Vörunúmer eru fjölmörg en vörur eru tiltölulega einsleitar; ein tegund af majonesi og beikoni, en pakkningar miðast við stóneytendur.

Þegar hlustað er á framsóknarkonuna, Ögmund Jónasson og varaformann neytendasamtakanna eru lítil fagnaðarlæti yfir komandi samkeppni, þrátt fyrir að allir þykjast fagna samkeppni. Talsmaður neytendasamtakanna talaði í heilan hring um fyrirbærið, auðvitað styður hún lágt verð, gæði og góða þjónustu en niðurstaðan var; “þeir eru bara of stórir fyrir Ísland”.

Ögmundur bætti í og sagði að “óþarfi væri að fagna því versta” [frá Bandaríkjunum]. Allt tal þingflokksformanns Framsóknar, gerði mann kjaftstopp og olli þvílíkri vanlíðan, að vera kann að hún muni leiða til „alvarlegs heilsubrests síðar á ævinni“.

nautakjot

Brá mér í Costco í morgun og keypti tvær djúsí nautasteikur. Kílóverðið á Rib steak, AAA kanadísku kjöti var $ 18,69 eða u.þ.b. 2000 kr Hef því miður ekki samanburðarupplýsingar frá Íslandi um verð og gæði.

Sá 60“ tommu Samsung Smart sjónvarp á tæpa $1200, sem með sölu og virðisaukaskatti yrði u.þ.b. 145.000 kr. Mér er sagt að sambærilegt tæki á Íslandi kosti á milli 800 og 900 þúsund. Menn geta svo velt því fyrir sér, hver álagning er ef vörugjöldin, tollur og virðisaukaskattur er um 65% og hagkvæmasta innkaupaverð, (Costco) er 125.000 kr.

Það þarf að brenna þessa forræðishyggjusvipu aðalsins og elítunnar á báli, í eitt skipti fyrir öll. Það er ekkert eðlilegt að „missa aleiguna“ tvisvar sinnum á lífsleiðinni út af óstjórn í peningamálum og ónýtum gjaldmiðli, eins og fjölmargir af minni kynslóð og Ögmundar hafa reynt.

Það er heldur ekkert eðlilegt að standa í vegi fyrir því að íslenskur almenningur geti drýgt tekjur sínar og aukið lífsgæði, með því að kaupa ódýrari vörur á af brettum á máluðu steingólfi.

Íslensk verslun hefur gott af „Costco“ sjokki, hún mun örugglega spjara sig betur og hagkvæmar.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283