Á Vísindavefnum er að finna ýmsar upplýsingar og þar er fyrirspurnum um eitt og annað svarað. Frábær vefur til að fræðast um allt milli himins og jarðar. Einhver hefur sett fram spurninguna:
Hvað getið þið sagt mér um bótúlín og bótox?
Hér birtum við svarið sem biritst á Vísindavefnum.
Bótúlíneitur (e. botulinum toxin) er taugaeitur sem framleitt er af bakteríunni Clostridium botulinum. Bakterían vex aðeins í súrefnissnauðu umhverfi, en myndar hitaþolin dvalargró við óhagstæðar aðstæður. Bótúlín er eitt af aleitruðustu efnum sem þekkjast, en einungis 1-2 ng/kg sprautað í vöðva eða æð, nægja til að drepa fullorðinn mann. Til samanburðar má nefna að það þyrfti um 3-7 mg/kg af heróíni til að drepa óvanan fullorðinn einstakling, það er um 2 milljón sinnum meira magn.
Eitranir af völdum bótúlíns verða oftast þegar menn fá illa meðhöndlaðan mat. Þá eru um 70 µg talin nægja til að drepa meðalmanninn. Eitrið veldur alvarlegri lömun, sem smátt og smátt stöðvar öndun. Eins og áður segir vex bakterían í súrefnissnauðu umhverfi en hún finnst aðallega í niðursoðnum mat. Maturinn hefur þá ekki verið hitaður nóg til að bakteríurnar drepist. Þessi eitrun er sjaldgæf í dag, þar sem heimaniðursoðinn matur er ekki algengur á borðum, að minnsta kosti á Vesturlöndum. Fréttir af dauðsföllum í Asíu, jafnvel fjöldatilfelli, berast þó öðru hvoru. Þá er talið að hluti af vöggudauða megi skýra með tilvist bakteríunnar í þörmum barnanna. Þangað hafa þær borist með óhreinindum eða hunangi, sem getur innihaldið gró bakteríunnar.
Þó undarlegt megi virðast hefur þetta hættulega taugaeitur verið notað bæði sem fegrunarlyf og í læknisfræðilegum tilgangi. Efnið gengur þá undir nafninu bótox. Þá er nýttur sá eiginleiki efnisins að lama vöðva. Efninu er sprautað í örlitlu magni í hrukkur í andliti fólks en það gerir húðina sléttari og getur árangurinn haldist jafnvel í nokkra mánuði. Þessi notkun hófst að mestu eftir árið 2002 og er nú orðin algeng aðgerð hjá lýtalæknum.
Nota má bótox í læknisfræðilegum tilgangi við ýmsum kvillum þar sem óstjórnlegir samdrættir vöðva valda truflunum á starfsemi eða verkjum. Meðal annars er það notað til að lina spastískar hreyfingar, minnka ofurmikla svitamyndun og gegn krónísku mígreni. Aukaverkanir eru oftast ekki alvarlegar, en í örfáum tilfellum hefur meðferðin þó valdið vöðvalömun og jafnvel dauða. Slíkt þekkist þó ekki við fegrunaraðgerðir, svo vitað sé.
Myndir:
- Clostridium botulinum – Wikipedia, the free encyclopedia. (Sótt 4.7.2013).
- Botox | Flickr – Photo Sharing! Myndrétthafi er AJ Cann. Myndin er birt undir Creative Commons-leyfi. (Sótt 4.7.2013).