Það er ekkert verra en að fá sár á fæturna, hvort sem það er vegna nýs eða of þröngs skófatnaðar. Hælaskór sem gaman er að pæjast á mynda álagspunkta á fæturna og þá er maður viðkvæmari fyrir því að fá hælsæri og jafnvel blöðrur. Nýir gönguskór eru oft harðir og stamir og ef þú ert að íhuga að skella þér í fjallgöngur eða lengri gönguferðir er eins gott að vera við öllu viðbúin.
Hvað er til ráða? Compeed hælsæris- og blöðruplástrar eru frábærir, auðveldir í notkun og draga strax úr sársauka og flýta fyrir að sár grói. Og það besta er að þú þarft ekkert að hvíla hælaskóna frekar en þú vilt og á ferðalaginu í gönguskónum ertu nokkuð örugg um að geta linað þjáningar þínar hratt og örugglega. Það er líka sniðugt að setja plástra á álagsstaði á fætinum til að fyrirbyggja sár og blöðrur.
Compeed eru einstakir plástrar sem eru sérhannaðir fyrir blöðrur og nuddsár. Plástrana má bæði nota fyrirbyggjandi til að forðast sár og blöðrur og einnig eftir að blaðra eða sár hefur myndast til að draga úr sársauka, vernda sárið og flýta fyrir gróanda.
Að sögn Jódísar Brynjarsdóttur, markaðstengils hjá Vistor, virkar plásturinn eins og gerviskinn og helst hann fastur í marga daga.
Compeed blöðruplástrarnir draga úr sársauka, verja húðina, bægja frá óhreinindum, vatni og sýklum og skapa húðinni kjörumhverfi til að gróa.
Jódís segir plástrana byggja á svonefndri vatnskvoðutækni þar sem innra lag plástursins er byggt upp af kvoðukenndu efni (hydrocolloid efni) sem inniheldur litlar rakadrægar agnir.
Þessar agnir draga í sig raka úr sárinu og breytast við það í gel sem hylur og verndar sárið og styrkir eigið viðgerðarferli húðarinnar. Ytra byrði plástursins kemur svo í veg fyrir að vatn, óhreinindi og bakteríur komist í sárið en „andar“ og viðheldur rakajafnvægi, líkt og gerist í húðinni sjálfri.
Að sögn Jódísar er þessi aðferð þekkt fyrir áhrifaríka og græðandi eiginleika og hefur lengi verið notuð í heilbrigðisgeiranum. Með þessum hætti er sárinu tryggt hæfilega rakt umhverfi fyrir sáragræðsluna og sárið grær hraðar.
Þegar nota skal Compeed blöðruplástra er gott að hita plásturinn í höndunum í 1-2 mínútur áður en hann er settur á húðina. Það eykur viðloðun límsins og plásturinn helst lengur á. Síðan er plástrinum þrýst á húðina og haldið í smá stund svo hann festist vel. Sé hann vel settur á helst hann fastur í marga daga, jafnvel þótt farið sé í sturtu eða sund.
Compeed Medium er hinn hefðbundni hælsærisplástur en Compeed Extreme er hins vegar öflugri plástur sem þolir meira álag og núning. Compeed Extreme er því sérlega hentugur fyrir fjallgöngur og lengri hlaup. Einnig fást litlir plástrar og plástrar fyrir tær ásamt stifti með áburði til að bera fyrirbyggjandi á núningsfleti.
Það er mælt með að plástrarnir séu notaðir fyrirbyggjandi á helstu núningsfleti á fætinum, t.d. fyrir hlaup, fjallgöngur eða þegar farið er í nýja skó. Annars ber að nota Compeed um leið og þú finnur að blaðra eða núningssár er að myndast og sársaukinn hverfur eins og dögg fyrir sólu. Því er alltaf gott að vera viðbúin og hafa Compeed í töskunni.
Compeed blöðruplástrar fást m.a. í Lyfjum og heilsu og í Apótekaranum.
Nánari upplýsingar um plástrana góðu er hægt að nálgast hér.