Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Misjafnar eru áhyggjur manna

$
0
0

Einhverstaðar í óraburtu frá rólegheitunum hjá mér berjast fátækir og illa þjálfaðir drengir við einn best þjálfaða og vopnum búna her heims. Ég sit á pallinum uppi í sumarbústað í Skorradal og ímynda mér að sjókettirnir á vatninu séu herflugvélar Ísraelsmanna. Ég hef mikið og gott ímyndunarafl en næ samt ekki að gera þetta raunverulegt.

Annarstaðar í veröldinni er hollensk stúlka að bíða og vona að svefnlyfin sín fari að gera eitthvert gagn. Öll fjölskylda hennar var skotin niður af hóp fábjána sem þekkja ekki muninn á farþega- og herflutningavélum. Ég hef meiri áhyggjur af hryðjuverkamönnunum á Veðurstofunni sem kunna ekkert nema spá rigningu, og því hvort ég hafi komið með nóg af bjór ef það koma einhverjir gestir.

Heimsstyrjaldir hafa byrjað af minna tilefni en atburðum seinustu viku en mér er efst í huga að í leik kvöldsins var Fylkir að skora mark þegar Stjarnan var komin tveimur yfir og leikurinn í öruggum höndum. Nú er leikurinn orðinn úkraínskur, þ.e.a.s. mínir menn búnir að missa alla stjórn á ástandinu.

Í glugganum í eldhúsinu gengur berserksgang óvenju árásargjarn geitungur og ég kemst því ekki til að ná í símann minn sem er þar í hleðslu.

Ég er því sambandslaus við umheiminn og auk þess órólegur vegna álagsins sem fylgir því að vera í sumarfríi og hafa stanslausar áhyggjur af vinnunni sem safnast upp og bíður mín þegar ég sný aftur.

Allt í einu skorar Stjarnan þriðja markið og allar mínar áhyggjur hverfa eins og dögg fyrir sólu. Við erum búnir að vera miklu betri í þessum leik og það hlaut bara að vera að það væri eitthvert réttlæti í veröldinni.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283