Fjölmenni var á Ingólfstorgi í dag, þegar tæplega 3000 manns komu saman til að lýsa stuðningi við saklausa borgara í Gaza. Eftir samkomuna lögðust 700 manns í grasið á Arnarhóli sem táknmynd fyrir þá ríflega 700 Palestínumenn sem hafa fallið á síðustu vikum. The Washington Post sýndi afar áhrifamikla mynd á vef sínum fyrir stuttu síðan þar sem greinilega kemur fram hversu mjög hallar á palestínumenn. Athugið að þessar tölur eru nokkura daga gamlar og tala látinna hefur hækkað jafnt og þétt.
Sveinn Rúnar Hauksson formaður félagsins Ísland – Palestína var fundarstjóri á Ingólfstorgi.
Dagur B. Eggertsson flutti ræðu og sagði meðal annars að hvert og eitt okkar yrði að taka afdráttarlausa afstöðu gegn ofbeldi og voðaverkum alltaf og allsstaðar.
Fjölmenni var á fundinum.
Allar ljósmyndir eru eftir Steingrím Steinþórsson útgefanda.