þjóðarsorg og einnar mínútu þögn var fyrirskipuð í Hollandi í dag vegna heimkomu þeirra sem létust þegar flugvél malasíska flugfélagsins var skotin niður yfir Úkraínu. Fyrstu líkin voru flutt til Hollands í dag. 4000 manns söfnuðust saman í Amsterdam í kvöld klukkan átta og gengu minningargöngu. Allir voru hvítklæddir. Víða um Holland kom fólk saman og minntust látinna landa sinna.
↧