Haraldur Sigurðsson eldfjallafræðingur birtir á bloggi sínu pistil sem ber heitið, SILICOR þýðir meiri mengun á Grundartanga. Sólarkísilverksmiðju Silicor hefur verið valinn staður í landi Klafastaða í Grundartanga og áætlað er að verksmiðjan hefji rekstur sumarið 2017. Það er ýmislegt sem Haraldur bendir á í pistli sínum sem manni bregður í brún við að lesa og varðar ekki bara væntanleg náttúruspjöll í Hvalfirðinum heldur mengunina sem af mun hljótast og snertir líf og heilsu almennings á Íslandi um ókomna tíð.
Við getum ekki setið þegjandi og hljóðalaust undir þessu. Lesið grein Haraldar sem við birtum hér með hans leyfi og deilið henni sem víðast.
Haraldur Sigurðsson skrifar.
SILICOR þýðir meiri mengun á Grundartanga
„Við lesum í fréttum að amerískt fyrirtæki hyggst reisa verksmiðju á Grundartanga til að framleiða sólarsellur. Sólarsellur eru að sjálfsögðu ágæt aðferð til að beisla endurnýjanlega orku, en það fylgir mikill böggull skammrifi.
Framleiðsla á sólarsellum og efninu polysilicon er mjög sóðalegt og mengandi verk og fylgir því mikil losun af eiturefninu sílikon tetraklóríð – SiCl4. Það er talið að við framleiðslu af einu tonni af polysílikon verði til úrgangur sem er fjögur tonn af sílikon tetraklóríð.
En það eru fleiri hliðar á þessu máli, sem nauðsynlegt er að athuga náið. Þar á meðal er saga og ferill fyrirtækisins Silicor.
Það þarf gífurlega raforku til að framleiða sólarsellur. Kísilsandur er innfluttur og bræddur við mjög háan hita, allt að 2000 oC og við það er reynt að losna við mest af súrefninu sem er bundið í sandinn, en eftir er tiltölulega hreint sílikon. Slíkar versmiðjur eru því reistar þar sem ódýr orka er fyrir hendi – eins og væntanlega á Íslandi.
Síðan er vökvinn sílikon tetraklóríð notað í miklu magni til að gera sílikon enn hreinna.
Framleiðsla á polysílikon er talin svo mengandi að Bandaríkin vilja helst ekki leyfa slíkan iðnað þar í landi og hafa hingað til látið Kínverja um sóðaskapinn heima hjá sér. Nú er röðin komin að Íslandi.
Silicor vill svína landið okkar út og kaupa hér ódýra orku. Hvar ætla þeir að losa sig við allt þetta magn af eiturefninu sílikon tetraklóríð? Hvað um klór gasið sem berst út í andrúmsloftið? Er ef til vill búið að afskrifa Hvalfjörð og Akranes, og dæma þetta svæði sem iðnaðarhverfi, þar sem mengun er leyfileg?
Silicor hét áður Calisolar og breytti um nafn til að fela sinn fyrri feril í viðskiptaheiminum vestra. Calisolar rak um tíma verksmiðju í Toronto, Kanada. Það fóru ljótar sögur af þeim rekstri, eins og sagt er frá í dagblaðinu Columbus Dispatch. Fyrirtækið var í Kaliforníu en reyndi svo fyrir sér fyrst í Ohio fylki og síðar í Mississippi og leitaði þar fyrir sér með lán til að reisa verksmiðju.
Þeir urðu að hverfa frá Mississippi vegna þess að fyrirtækið gat ekki einu sinni lagt fram $150,000 sem stofnfé.
Nú er forstjórum Silicor fagnað af fyrirmönnum Faxaflóahafna og þeir í Silicor ræða við Arion banka um lán til að reisa verksmiðju hér. Hvað viljum við leggjast lágt til að fá iðnað inn í landið?“
Linkar:
Silicor gátu ekki lagt fram 150.000 dollara stofnfé