Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Merkar konur víða um heim árið 2013

$
0
0

Hér birtir Kvennablaðið lista yfir nokkrar erlendar konur sem vöktu athygli á árinu sem er að líða. Þessi listi er ekki í neinni sérstakri röð og eflaust margar fleiri konur sem hægt hefði verið að nefna, en í ár urðu þessar konur fyrir valinu. Þarna eru á meðal annarra merkar kvenréttindakonur, leikkonur, þingkonur og hvunndagshetjur.

Malala Yousufzai

Screen Shot 2013-12-21 at 5.54.58 PM

Malala Yousufzai hlaut verðskuldaða athygli á árinu sem er að líða.  Hún var tilnefnd til Friðarverðlauna Nóbels og bók hennar, Ég er Malala, kom út.  Sameinuðu þjóðirnar hafa nú nefnt 12. júlí, Dag Malölu, en það er afmælisdagur hennar.  Á þeim degi 2013 ávarpaði Malala 500 konur í boði Sameinuðu þjóðanna og sagði þessi fleygu orð:

Talibanarnir hæfðu mig í vinstra gagnaugað. Þeir skutu líka á vini mína. Þeir héldu að kúlnahríðin myndi þagga niður í okkur, en þeir höfðu ekki erindi sem erfiði. Upp úr þögninni risu þúsund raddir. Hryðjuverkamennirnir héldu að þeir gætu haft áhrif á fyrirætlanir mínar og markmið.  Ekkert breyttist í lífi mínu við þetta nema það að veikleikar mínir, hræðslan og vonleysið var á bak og burt. Ég öðlaðist styrk, vald og hugrekki.

Alice Munro

Alice-Munro-photo

Kanadíski smásagnahöfundurinn Alice Munro hlaut Nóbelsverðlaunin fyrir bókmenntir árið 2013.  Það þótti sæta tíðindum að hún mætti ekki sjálf en sendi dóttur sína í sinn stað til að veita verðlaununum viðtöku. Engu að síður var haldin heilmikil hátíðardagskrá Alice til heiðurs og þar var sýnt viðtal sem var tekið við hana heima í Kanada af þessu tilefni.

 

Angelina Jolie

Screen Shot 2013-12-21 at 6.39.22 PM

Leikkonan og aðgerðarsinninn Angelina Jolie lét fjarlægja bæði brjóst sín þegar hún fékk að vita að hún bæri BRCA-1 genið sem stóreykur líkur á krabbameini í brjóstum og eggjastokkum. BRAC-1 genið er ekki algengt á Íslandi og hefur aðeins fundist í tveimur fjölskyldum hér á landi. Angelina gaf frá sér yfirlýsingu í dagblaðinu The New York Times í kjölfar aðgerðarinnar þar sem hún sagði meðal annars:

Ég tók afdráttarlausa ákvörðun sem á engan hátt dregur úr kvenleika mínum

 

Michelle Knight

Screen Shot 2013-12-21 at 6.49.39 PM

Michelle Knight var í haldi mannræningjans Ariel Castro í Cincinnati í meira en 10 ár þar sem hún mátti sæta gegndarlausu ofbeldi af hendi kúgara síns. Áður en ljóst var hvaða hrylling hún hafði mátt þola sendi hún frá sér yfirlýsingu á vef lögreglunnar í Cincinnati:

Á því augnabliki þegar lirfan hélt að lífið væri á enda, varð hún að fiðrildi

 

Jennifer Lawrence

Jennifer Lawrence at the LA press conference for The Hunger Games: Catching Fire

Leikkonan unga fékk Óskarsverðlaunin og lék hlutverk í stórmyndum á árinu. Hún hefur alls staðar vakið athygli fyrir hispurslausa og eðlilega framkomu. Jennifer þykir laus við tilgerð og stjörnustæla. Hún gefur framleiðendum sem vilja að hún grenni sig langt nef, svarar fyrir sig fullum hálsi og lætur ekki hafa sig að fífli. Flott stelpa, hörkuklár og hefur verið fyrirmynd margra ungra kvenna.

 

Wendy Davis

Screen Shot 2013-12-21 at 7.21.22 PMÞingmaðurinn Wendy Davis frá Texas talaði sleitulaust í ellefu klukkustundir í þinginu til að reyna að koma í veg fyrir að lög sem myndu skerða rétt kvenna til fóstureyðinga myndu ná fram að ganga. Hún vakti athygli um allar trissur fyrir þrautseigju sína og bleiku strigaskóna sem hún klæddist til að hún hefði úthald í að standa svo lengi sem raun ber vitni. Wendy hefur orðið öðrum konum hvatning til að berjast fyrir réttindum kvenna hvað barneignir varðar og gefur kost á sér í embætti  ríkisstjóra í Texas árið 2014.

Gloria Steinem

Screen Shot 2013-12-21 at 8.37.48 PM

Rithöfundurinn og femínistinn Gloria Steinem hlaut æðstu viðurkenningu forseta Bandaríkjanna fyrir fjögurra áratuga starf í þágu kvenréttinda. Ophra Winfrey og Dolores Huerta hlutu einnig viðurkenningu við sama tækifæri. Gloria Steinem tileinkaði viðurkenninguna kvenréttindabaráttu um allan heim.

Angela Merkel

Screen Shot 2013-12-21 at 9.02.38 PM

Angela Merkel  hlaut yfirburðakosningu í kosningunum í Þýskalandi en þetta er í þriðja sinn sem hún hlýtur kosningu sem kanslari Þýskalands. Hér má sjá Angelu tala til stuðningsmanna sinna þegar sigurinn var ljós.

 

Inbee Park

Screen Shot 2013-12-21 at 11.14.10 PM

 

Golfstjarnan frá Suður Kóreu varð fyrsta konan í 63 ár til að vinna til þrennra verðlauna á stórmótum. Við verðlaunaafhendingu alþjóðagolfsambands kvenna þar sem hún var valin golfspilari ársins sagði hún að hún hefði breytt áherslum sínum í spilamennskunni og það hefði gert gæfumuninn.

Það kemur á óvart en um leið og ég setti mér það markmið að vera hamingjusöm, náði ég betri árangri en áður.

Antoinette Tuff

Screen Shot 2013-12-21 at 11.27.46 PM

 

Bókari í barnaskóla nokkrum í úthverfi í Atlanta yfirbugaði mann sem réðst inn vopnaður AK- 47 vélbyssu og 500 skotum með því einu að tala við hann.  Maðurinn sagði lífið ekki vera sér nokkurs virði og Antoinette sannfærði hann um að hann væri ekki einn um það að líða illa og sagði honum meðal annars frá því að maðurinn hennar hefði yfirgefið hana eftir 33 ára hjónaband.

Antoinette bað manninn að hætta við fyrirætlun sína og sagði honum að henni þætti vænt um hann. Hún sagði árásarmanninum enn fremur að hún væri stolt af honum þegar hann loks gafst upp og ákvað að gefa sig fram. Hér má viðtal Anderson Cooper hjá CNN við Antoinette og konuna sem svaraði símanum í neyðarlínunni 911 þegar Antoinette hringdi eftir hjálp.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283