Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Guli hundurinn

$
0
0

Þrátt fyrir að vera alþjóðlegt verkefni hefur ekki verið mikið talað um Gula hundinn á Íslandi.

Margir hundeigendur á landinu hafa verið sér meðvitandi um gildi gula litsins í einhvern tíma en hafa ekki getað nýtt sér hann þar sem þekkingin hefur ekki náð að dreifa sér til hins almenna borgara.

En hvað er Gulur hundur? Gulur hundur getur verið ansi margt en þeir eiga það allir sameiginlegt að þurfa meira svigrúm en aðrir hundar og eru allir merktir með gulum borða á taumnum, gulum hálsklút eða annarri gulri merkingu sem vel er sjáanleg.

Yellowdoglead

Þessa hunda á ekki að trufla og geta legið ýmsar ástæður fyrir því, hann gæti verið í þjálfun, verið að ná sér eftir veikindi eða slys, þetta gæti verið hundur sem hefur átt erfiða ævi en er nú kominn á gott heimili þar sem verið er að umhverfisvenja hann í smáum skömmtum eða hann er óöruggur eða hræddur í kringum aðra hunda.

Þessi listi er ekki tæmandi en gefur góða hugmynd um hvað verkefnið snýst um.

Oft gleymir fólk því að hundar eru tilfinningaverur. Þeir verða hræddir, leiðir, sárir og þeim getur brugðið. Síðast í dag var hjólað snöggt fram hjá tíkinni minni og henni brá svo svakalega að hún gelti að viðkomandi.

Þegar ég og maðurinn minn tókum tíkina að okkur hefði verið óskandi að við hefðum vitað hvað Guli hundurinn væri því það hefði verið virkilega gott að merkja hana sem slíka.
Hún var fimm mánaða og kom af heimili þar sem henni hafði ekki verið allt of vel sinnt. Hún var ekki húsvön en það tók aðeins tvo daga að húsvenja hana enda feiknaklár hundur sem hafði því miður ekki fengið rétta umönnun.
Lengi vel hörfaði hún ef fólk reyndi að klappa henni og tók það marga mánuði af klappi og knúsi að fá hana til að hætta að vera hrædd við allt og alla. Enn þann dag í dag er hún smeyk við dökkklædda karlmenn sem eru einir á ferð og hún geltir í átt að fólki sem að hennar mati „hegðar sér furðulega“.

Stundum hefur maður fengið spurninguna „af hverju að taka að sér hund sem hefur vandamál?“ Svarið er að mínu mati afskaplega einfalt. Öll dýr eiga rétt á góðu lífi. Hundur er aldrei vondur eða „slæmur“ í eðli sínu, þetta eru góðar skepnur og með rétta heimilinu og aðhaldinu eru þetta ein yndislegustu dýr sem völ er á.

Þetta er eins og með börnin sem læra það sem fyrir þeim er haft. Það eru ekki til vondir hundar, aðeins slæmir eigendur.

Stundum kemur fyrir að hundar lenda ekki á góðu heimili og þróa þeir þá með sér ýmsa hluti sem okkur mannfólkinu þykja ekki ákjósanlegir, eins og að glefsa í fólk, gera þarfir sínar inni og strjúka (tekið skal fram að sumir hundar strjúka þrátt fyrir að eiga gott heimili og þá helst rakkar).

Þá er ekki rétt að spyrja hvað í fjandanum sé að dýrinu, það hljóti að vera gallað, heldur er lausnin yfirleitt fólgin í því að horfa til eigandans því undantekningarlaust er það hann sem er að gera eitthvað vitlaust.

gulir hundar

Ekki eru allir slæmir eigendur tilbúnir til að breytast og fá þeir oft þá flugu í höfuðið að losa sig við dýrið (oftast eftir að hafa borist fjöldinn allur af kvörtunum).

Ekki þykir mér rétt, hundsins vegna, að hann endi þá í svæfingu heldur finnst mér að allir hundar eigi að fá annað tækifæri og þá hjá fólki sem sér fram á að geta unnið í skapgerðarbrestunum sem sköpuðust hjá dýrinu á fyrra heimili.

Ég hef aldrei séð eftir því að hafa tekið að mér hund með sérþarfir. Þegar við fengum tíkina var hún langt frá því að vera fullkomin og oft varð ég mjög þreytt (eins og þegar hún nagaði hælana af jólaskónum mínum og rústaði íbúðina á Þorláksmessu) en í dag er hún að mínu mati hársbreidd frá því að vera fullkomin.

Ég get ekki hugsað þá hugsun til enda hvað hefði orðið um litlu prinsessuna mína ef við hefðum ekki tekið hana að okkur, það sem kemur helst upp í hugann er stöðugt flakk á milli heimila eða dauði.

Ósk mín og örugglega margra annarra hundeigenda er að Guli hundurinn verði að almennri þekkingu hér á landi svo eigendur þeirra gulu geti ferðast um með þá án þess að vera stöðugt með hnút í maganum yfir því að aðrir hafi ekki hugmynd um hvað merkingin á hundinum þýði.

Sýnið eigendum Gulra hunda tillitssemi svo við getum haldið áfram að skapa öruggt og gott umhverfi fyrir hundana og okkur sjálf.

Fræðist meira um Gula hunda hér og hér. Svo minni ég á greinina mína um hunda og börn sem þið finnið hér.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283