Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Fordómar samfélagsins

$
0
0

Ég á erfitt með að trúa þeim sem segja okkur hafa átt fyrsta samkynhneigða forsætisráðherra sögunnar. Ég bara trúi því engan veginn að Halldór Ásgrímsson sé gay. Maðurinn hefur ekki þetta opinskáa og gleðilega yfirbragð sem er einkennandi fyrir hópa fólks sem nýlega er hætt að mismuna opinberlega.

En nú þegar kirkjan og ríki hafa að mestu leyti samþykkt þá framúrstefnulegu hugmynd að samkynhneigðir séu fólk sem koma á fram við af virðingu og sanngirni, þá finnst mér sjálfsagt að líta yfir sviðið og sjá hvort að ekki leynast fleiri fórnarlömb fordóma okkar í dimmum skúmaskotum samfélagsins.

Erum við að koma fram við alla eins og við viljum láta koma fram við okkur? Getur verið að við séum enn að beita okkur gegn ákveðnum hópum fólks, halda þeim niðri svo einstaklingar innan hans geti ekki lifað eðlilegu lífi í samræmi við getu sína og þrár? Er einhver hópur reglulega niðurlægður af fyrirlitlegu kerfi, stýrðu af embættismönnum sem samviskulausir fylgja í blindni ósanngjörnu og mannskemmandi kerfi sem lítur á menn misréttháa?

Svarið er já, auðmenn.

Nú er í tísku að hata auðmenn. Fólk eins og mig og þig sem ekkert hefur sér til saka unnið nema áskotnast gríðarlega mikið fé. Svo skilst mér að með miklum peningum koma fljótt miklar skuldir. Það er einhver regla í fjármálaheiminum. Því meiri pening sem þú átt, því meira skuldar þú. Hrikalegt alveg.

Og þessa menn fyrirlítum við. Við skrifum bækur um hvað þeir eru miklir asnar. Gerum grín að þeim í sjónvarpi allra landsmanna og viljum fangelsa þá. Eins og Nelson Mandela. Um leið og við lesum um að einhver greyið maðurinn hafi fengið smávægilegar afskriftir, sem líta má á sem fjárhagslega aðstoð frá ríkinu, þá kemur æstur múgurinn og heimtar að „helvítis auðmaðurinn“ sé sviptur frelsinu og hent í steininn. Og fær alls ekki neinar 2000 krónur fyrir að fara yfir byrjunarreit, bara alls ekki!

Auðvitað er þetta ekki í lagi. Auðmenn eru bara fólk eins og við hin. Þeir kannski búa betur, eiga fleiri hluti og heitari maka en þú en þeir geta ekkert að því gert. Sumir bara fæddust svona. Fæddust inn í ríkar fjölskyldur. Aðrir verða auðmenn því þeir bara geta ekki hugsað sér að lifa eins og meðaljón. En það velur enginn að verða auðmaður. Þú vaknar ekki upp einn daginn og ákveður það að eiga hundruðir milljóna inn á banka. Ef það væri þannig þá væru engir auðmenn.

Gleðigangan er æðisleg og að sjálfsögðu fagna ég eins og aðrir. Að menn skuli leyfa sér að hatast við fólk af þeirri ástæðu einni að það elskar annað fólk er ömurlegt. En ég trúi því að smátt og smátt lærum við og með hverju skrefi færumst við nær því að verða réttlátt samfélag.

Kannski sjáum við á næstu árum Paypride. Auðmenn og aðstandendur þeirra arkandi niður Laugaveginn í baráttu sinni fyrir sjálfsögðum mannréttindum.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283