Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Við skulum minnast …

$
0
0

Þegar við horfum á verðlaunahátíðir í sjónvarpinu eins og Emmy-hátíðina, Óskarinn og Golden Globe þá er gjarnan dagskrárliður tileinkaður þeim sem létust á árinu og tilheyrðu kvikmynda-og sjónvarpsstéttinni.

Shirley temple lést árið 2014

Shirley temple lést árið 2014

Oftast fáum við að sjá um 20-30 leikara og leikkonur, leikstjóra og framleiðendur birtast á skjánum og tekur dagskrárliðurinn yfirleitt örfáar mínútur.

Við höfum sagt frá því að Billy Crystal mun minnast leikarans ástsæla Robin Williams á Emmy verðlaunahátíðinni 2014. Líklegt má teljast að leikarans Philip Seymour Hoffman verði einnig minnst á veglegan hátt en hann lést 2. febrúar s.l.

the-look-bacall

Lauren Bacall

Leikkonan Lauren Bacall lést 12. ágúst 2014 þá 89 ára að aldri, grínistinn Mickey Rooney lést þann 6. apríl og breski leikarinn Bob Hoskins andaðist þann 29. apríl s.l. Shirley Temple lést einnig á árinu.

Mickey Rooney

Mickey Rooney

Það er athyglisvert ef gagnagrunnurinn Internet Movie Database ( www.imdb.com ) er skoðaður þá hafa um 1896 fagaðilar úr  kvikmynda-og sjónvarpsbransanum látið lífið á árinu. Vefurinn www.imbd.com er gagnlegur öllum þeim sem hafa gaman af að grúska í efni sem tengist sjónvarps-og kvikmyndagerð.

Bob Hoskins

Bob Hoskins

Það þyrfti sumsé ríflega tveggja klukkustunda langa útsendingu til að gera öllum þessum 1896 aðilum skil, þótt hvert og eitt þeirra fengi aðeins 5 sekúndur á skjánum og eigi það örugglega skilið að starfs þeirra sé minnst á verðugri hátt en svo.

Hér má sjá listann eins og hann er í dag  yfir þá sem látist hafa á árinu 2014. Röðin miðast að því er virðist við vinsældir þeirra samkvæmt gagnagrunni www.imdb.com og skiljanlega eru Robin Williams, Lauren Bacall og Philip Seymour Hoffman þar efst þar á blaði.

 


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283