Erlendir fjölmiðlar fylgjast grannt með stöðu mála á Íslandi vegna óróa og skjálfta í eldstöðvum á Íslandi. Hér eru nokkrar greinar þeirra sem og tvít ýmissa aðila af Twitter sem greinilega hafa áhuga á eldfjallavirkni á Íslandi. Það er huggun harmi gegn að orðið Bárðarbunga er auðveldara í framburði en orðið Eyjafjallajökull sem varð uppspretta margra brandara á fréttastöðvum víða um heim.