Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Fín frú, sendill og allt þar á milli

$
0
0

Sýning um Auði á Gljúfrasteini opnaði þann 22. ágúst í Listasal Mosfellsbæjar í Þverholti 2, Mosfellsbæ.

Þessi sýning markar ákveðin tímamót í sögu safnsins því í fyrsta sinn er saga Auðar sögð í formi sýningar. Undirtitill sýningarinnar „Fín frú, sendill og allt þar á milli“ er tilvísun í þau mörgu hlutverk sem Auður á Gljúfrasteini gegndi.

Ljósmynd Ragnar Axelsson

Ljósmynd Ragnar Axelsson

Sýningin er einskonar innsetning þar sem gefur að líta verk Auðar, munstur eftir hana, ljósmyndir, hljóðmyndir og gripi sem tengjast minningum um Auði. Fjölmargir hafa komið að undirbúningi sýningarinnar sem byggir á meistararitgerð Mörtu Guðrúnar Jóhannesdóttur í safnafræði. Fjölskylda og nánustu ættingar Auðar hafa lagt til gripi og textabrot. Þannig eru sagðar margar, skemmtilegar og ólíkar sögur um húsfreyjuna á Gljúfrasteini.

Auður, Halldór og dætur þeirra Sigríður og Guðný.

Auður, Halldór og dætur þeirra Sigríður og Guðný.

Nú í haust eru tíu ár frá því að Gljúfrasteinn opnaði formlega sem safn. Það var að frumkvæði Auðar og hennar nánustu að gengið var frá undirritun samnings 23. apríl 2002 um sölu á Gljúfrasteini og þeim listaverkum sem prýða húsið. Við sama tækifæri var undirritað gjafabréf þar sem Auður gefur ríkinu bókasafn og handrit Halldórs Laxness auk innbúsins á Gljúfrasteini. Gjöfin var ómetanleg og höfðingleg.

Sýningarteymið skipa Guðný Dóra Gestsdóttir safnstjóri Gljúfrasteins, Marta Guðrún Jóhannesdóttir safnafræðingur og Þórunn Elísabet Sveinsdóttir sýningarhönnuður.

Sýningin stendur frá 22. ágúst – 28. september.

Útvarpsþætti um Auði sem Marta Guðrún Jóhannesdóttir safnafræðingur gerði um Auði Sveinsdóttur, vináttu hennar og Nínu Tryggvadóttur listamanns, hannyrðir, textílverk og sýninguna sem nú hefur verið opnuð má hlýða á hér. 


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283