Maður sem kallar sig Scott Spideralamode hefur vakið heimsathygli fyrir myndband sem hann sendi frá sér fyrst árið 2012. Ástæður þess hve mikla athygli myndbandið fær um þessar mundir má rekja til þess að allmörg félög sem berjast fyrir rétti þolenda kynferðisofbeldis hafa dreift myndbandinu á sínum vefsíðum og samfélagsmiðlum.
Í myndbandinu lýsir Scott með textaspjöldum barnæsku sinni og ljótu leyndarmáli sem hann hélt fyrir sig allt of lengi og hafði að sögn áhrif á allt hans líf. Scott er trukkabílstjóri og á að baki fíkniefnaneyslu, afbrotaferil og fangelsisvistir en hefur í seinni tíð beitt sér fyrir þolendur kynferðisofbeldis.
Á Facebook síðu Scott má sjá að margir þakka honum fyrir að hafa komið fram til að segja sína sögu öðrum til hvatningar að gera slíkt hið sama.
Scott segir að ekkert barn ætti að þurfa að bera slíkar byrðar og segir mikilvægt að börnum sé uppálagt að segja frá ef þau verða fyrir ofbeldi. Scott ber kennsl á ofbeldismanninn sem misnotaði hann í æsku en samkvæmt lögum í Kaliforníu er málið því miður fyrnt.
Myndbandið er magnað og frásögnin skýr. Við hvetjum ykkur til að horfa á myndbandið og deila því áfram.
Ljósmynd af Facebook síðu Scott.