Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Er hlaup í suðvestur enn inni í myndinni?

$
0
0

Ómar Ragnarsson skrifar.

Í dag má sjá að margir stórir skjálftar eru nú í suðvestanverðri Bárðarbungu. Á flugi yfir bunguna í hádeginu í gær mátti sjá, rétt áður en ský fóru að hylja bunguna, að svo virtist sem nýjar íssprungur væru að koma í ljós á suðvesturhluta hennar og aðrar sprungur að stækka.

Þetta minnir svolítið á Kröflueldana á sinni tíð þegar skjálftar og órói færðust sitt á hvað til suðurs eða norðurs og enginn vissi hvar jarðeldur myndi koma upp.

Mynd af sprungu sem Ómar birti á facebooksíðu sinni.

Mynd af sprungu sem Ómar birti á Facebooksíðu sinni.

Níu sinnum kom upp kvika, en aðeins einu sinni í suður og þá í einhverri mestu mýflugumynd sem eldfjallasaga jarðar kann að geyma. En enginn veit hve litlu munaði þá að gos í Bjarnarflagi og þar suður af yrði stærra og meira.

Þess vegna er nauðsynlegt að útiloka ekki neinn af þeim möguleikum, sem þarna eru og geta leitt stórflóð niður í fern vatnasvið hið minnsta, suður í Grímsvötn, suðvestur í Köldukvísl og niður Tungnaá og Þjórsá, niður í Skjálfandafljót eða niður í vatnasvið Jökulsár á Fjöllum.

 

Færsla birt fyrst á bloggi Ómars Ragnarssonar á mbl.is


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283