Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Harpa Rut Heiðarsdóttir skrifar í Kvennablaðið

$
0
0

Harpa Rut hefur vakið athygli fyrir hvatningarpistla sína um hreyfingu og mataræði í Kvennablaðinu.

Hún talar til þeirra sem hafa litla trú á því að þeir geti lést og bætt lífsgæði sín sjálfir. Harpa Rut veit að glíman við offitu tekur tíma og hún býður ekki upp á skyndilausnir heldur vill efla konur til þess að gefast ekki upp og auðvitað að ná markmiðum sínum. Harpa Rut tók málin í sínar hendur fyrir nokkrum árum síðar svo að hún veit alveg hvað hún er að tala um.

Harpa er venjuleg íslensk kona sem þekkir af eigin raun hvað það er að þjást af offitu og vanlíðunina sem því fylgir og hún vill endilega aðstoða þær sem vilja breyta lífi sínu til batnaðar.

„þegar ég sé konur sem eru of feitar langar mig til að taka utan um þær og segja þeim að þetta sé ekki vonlaust, að það sé hægt að snúa dæminu við.“

Harpa mun í vetur tala opinskátt um fylgifiska þess að vera of feitur og tala af eigin reynslu um göngu sína í átt að betra lífi og auknum lífsgæðum. Fyrsti pistill Hörpu á persónulegu nótunum mun birtast á morgun.

Harpa starfar sem fangavörður og er menntaður ÍAK einkaþjálfari.

Kvennablaðið hlakkar til að eiga áframhaldandi samstarf við Hörpu í vetur!


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283