Fimm ára drengir á leikskólanum Laufásborg sendu Borgarstjóra eftirfarandi bréf á vef Reykjavíkurborgar. Samkvæmt kennurum á Laufásborg sammæltust drengirnir um það að kvörtunarbréfið yrði líka að innihalda hrós til handa borgarstjóra. Skemmtilegt og margir eflaust sem taka undir með drengjunum um að bæta megi ásjónu borgarinnar.
Ljósmynd af Degi af Facebooksíðu hans. Við fjarlægjum hana ef þess verður óskað.