Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Fyrirlestur um vímuefnamál sem enginn má missa af – David Nutt

$
0
0

Prófessor David Nutt er heimsþekktur breskur vísindamaður og sérfræðingur um vímuefnamál. Hann hefur getið sér gott orð fyrir miskunnarlausa gagnrýni á hræðsluáróður og rangfærslur stjórnmálamanna og fjölmiðla í vímuefnamálum, en einnig hlotið skrokkskjóður fyrir óþægilegan heiðarleika og hreinskilni, ekki síst vegna greina sem hann skrifaði um hættur af völdum ýmissa vímuefna.

Prófessor David Nutt dvaldist á Íslandi frá 13. til 17. september, í boði Snarrótarinnar. Hann flutti opinberan fyrirlestur um vímuefnamál og vímuefnastefnu þriðjudaginn 16.september á Háskólatorgi. Fyrirlesturinn var gríðarlega vel sóttur. Kvennablaðið birtir hér upptöku af fyrirlestri Nutt í heild sinni með leyfi Snarrótarinnar.

David Nutt hefur birt rúmlega fjögur hundruð rannsóknargreinar í viðurkennd fagtímarit, álíka fjölda umsagna og bókakafla, fjölda opinberra greinargerða um lyf og vímuefni og alls tuttugu og sex bækur.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283