Hvað kemur upp í hugann þegar við hugsum um Bretland? Drottningin, fiskur og franskar, og auðvitað pöbbarnir.
A Royal Hangover eða Konungleg þynnka er heimildarmynd um drykkjumenninguna í Bretlandi.
Framleiðendur segja: Ímyndið ykkur bíómyndina Bowling for Columbine en takið út byssurnar og setjið bús í staðinn. – Myndin gæti heitið Drinking for Britain eða Skálað fyrir Bretlandi.
„Við skjótum okkur ekki í hausinn hér – við drepum okkur á drykkju – miklu virðulegra!“
Í heimildamyndinni koma fram meðal annarra leikarinn Russel Brand og prófessor David Nutt sem var einmitt á Íslandi á dögunum og hélt vel sóttan fyrirlestur í Háskóla Íslands. Fyrirlestur Nutt er hægt að horfa á hér.
Í myndinni er varpað fram áleitnum spurningum. Er áfengi – hið löglega eiturlyf – hættulegasta eiturlyfið?
Margt virðist benda til þess að svo sé og tölur frá Bretlandi sanna að ungmennadrykkja er verulegt heilbrigðisvandamál þar í landi og kynslóð ungs fólks er að greinast með lifrarsjúkdóma langt fyrir aldur fram. Sjáum hér stiklu úr myndinni: