Quantcast
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Um sýninguna Stelpumenning

Heiða Halls skrifar:

Ég fór að sjá sýninguna Stelpumenning eftir Lauren Greenfield, sem hefur unnið við heimildaljósmyndun og kvikmyndagerð frá árinu 1991. Sýningin er í fullum gangi til 11. janúar 2015 í Ljósmyndasafni Reykjavíkur.

Í Stelpumenningu er verið að skoða muninn á hinni hefðbundnu klisjukenndu góðu/siðprúðu stúlku sem gengur í kjól og er með slaufu í hárinu og hinni frjálslyndu stúlku sem er hispurslaus í fasi og finnst ekkert að því að vera fáklædd opinberlega og ögra umhverfinu.

Á sýningunni eru margar ljósmyndir og hverri mynd fylgir texti, oft frá fyrirsætunum sjálfum sem gott er að gefa sér tíma til að lesa. Það gefur sýningunni og myndunum dýpri upplifun.

Myndaröðin er afrakstur fimm ára rannsóknar Greenfield á lífi stelpna og kvenna víðs vegar úr Bandaríkjunum. Stelpumenning kom út sem ljósmyndabók árið 2002 og hefur vakið mikla athygli um allan heim.

Á sýningunni kynnumst við á ljósmynd hinni 18 ára Mary Cady og ýtarlegri lýsingu frá henni sjálfri um hversu siðprúð og dyggðum gædd hún er – hún drekkur ekki, reykir ekki, blótar ekki og fær góðar
einkunnir. Hún gerir allt „rétt“. Hún getur ekki beðið eftir að gifta sig og telur að karlmaðurinn sé höfuð og herðar heimilisins.

Á sýningunni kynnist maður líka annars konar viðhorfum og öðruvísi stelpum. Ein sem mér fannst athyglisverð var hin 17 ára Alison og lýsir hún því á mjög nákvæman hátt að hún og flestir hennar vinir séu með greiningar eins og t.d. athyglisbrest eða þunglyndi og að flest þeirra séu á einhvers konar lyfjum.

Mér fannst þessi sýning svolítið sláandi að því leytinu til að enn eru til stelpur sem hafa forneskjulegar hugmyndir um hlutverk kynjanna og líta svo á að þeirra eina hlutverk sé að gera karlmenn hamingjusama.

Image may be NSFW.
Clik here to view.
Screen Shot 2014-10-06 at 10.14.38 e.h.

Sýningin minnir mann líka óþægilega á hversu mikil útlitsdýrkun er í gangi og hversu brenglað viðhorf margra stúlkna er gagnvart útliti sínu.

Ég sem kona get alveg viðurkennt það að það er mikil pressa á að líta vel út og að því minna sjálfstraust sem maður hefur því meira hugsa ég um útlitið. En þegar manni líður ekki vel þá skín það alltaf í gegn.

En sjón er sögu ríkari og ég mæli með Stelpumenningu fyrir alla, bæði karlmenn og konur. Þetta er að mínu mati sýning sem hreyfir við manni á margan hátt.

Sýningin Stelpumenning stendur yfir til 11. janúar 2015 eins og áður sagði.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283