Eggert Gunnarsson, dagskrárgerðarmaður og framleiðandi, hefur um nokkurt skeið unnið að gerð heimildarmyndar sem fjallar um Íslendinga sem búsettir eru í Noregi og líf þeirra þar. Eggert byggir myndina á viðtölum við brottflutta sem sumir hafa búið í Noregi um áratugaskeið en einnig við fólk sem hefur haft skemmri búsetu.
Myndin ber heitið, Fyrirheitna landið? Íslenskar fjölskyldur í Noregi.
Eggert, ásamt samstarfsfólki sínu, safnar nú fjármagni hjá Karolinafund og eru aðeins þrír dagar til stefnu til að styðja þetta spennandi verkefni. Noregur er mörgum Íslendingum ofarlega í huga enda hefur fjöldi landa okkar flutst þangað á síðustu árum.
Sjáið hér stiklu úr myndinni:
Við spurðum Eggert hvað helst hefði komið á óvart við efnisöflun og samtöl sín við viðmælendur sem eru tæplega tuttugu talsins.
„Hvað þau tala um að líf þeirra hafi breyst mikið. Þau segja öll að þau nái endum saman en hafi tíma til að sinna fjölskyldunni. Þau telja öll að hag sínum sé betur borgið i Noregi en heima. Annað sem er sérstakt er að ekkert þeirra er „hrunflóttafólk“ heldur fólk sem fór til að leita að öðrum tækifærum en bjóðast heima á Íslandi.“
Í myndinni er meðal annars talað við Hjónin Ívar Örn Sverrisson leikara og Örnu Ösp Guðmundsdóttur arkitekt.
Arna hefur nýlokið námi og er að reyna að hasla sér völl þarna. Ívar hefur unnið fyrir sér hér og hvar. Hann hefur afgreitt kaffi og stundað önnur þjónustustörf en núna sér hann fyrir sér með því að leika hjá sjálfstæðum leikhópum, í Óperunni og í fyrrahaust fékk hann lítið hlutverk hjá Þjóðleikhúsinu.
Kristín Guðmundsdóttir og Heiðar Árnason eru einnig viðmælendur Eggerts í myndinni. Hún vinnur í unglingadeild í skóla og hann er í námi. Þau eiga tvö börn og búa rétt fyrir utan Osló.
Fyrirheitna landið er spennandi verkefni og við hvetjum ykkur til að styðja við bakið á Eggerti og hans samstarfsfólki á síðu Karolinafund. Karolinafund er hópfjármögnunarsíða þar sem hægt er að styrkja með háum og lágum upphæðum. Margt smátt gerir eitt stórt!