Í ljósi upplýsinga um starfshætti Mjólkursamsölunnar sem styðst við hæpin samkeppnislög, stundar einokun á markaðnum og sýnir fádæma framkomu við aðra mjólkurvöruframleiðendur, þá datt okkur hjá Kvennablaðinu í hug að gera á því úttekt hvort venjuleg fjögurra manna fjölskylda gæti ekki lifað góðu lífi án þess að kaupa vörur frá Mjólkursamsölunni.
Þegar stjórnvöld sem eiga að gæta hagsmuna neytenda en ekki einkafyrirtækja rækja ekki skyldur sínar fellur það í hlut neytenda að sýna fyrirtækjum vanþóknun sína ekki bara í orði heldur með beinum aðgerðum.
Við báðum þær Jódísi Skúladóttur og Guðrúnu Lilju Magnúsdóttur sem eru með tvö börn í heimili að sniðganga vörur frá MS í eina viku og skrifa svo grein í kjölfarið um tilraunina.

Guðrún Lilja Magnúsdóttir, Jódís Skúladóttir og börn þeirra Magnús Bjartur Guðrúnarson og
Eldey Arna Guðrúnardóttir
Mjólkursamsalan hefur leiðandi stöðu á markaðnum í vöruflokkum sem margar fjölskyldur nota hvað mest, svo sem mjólk, jógúrt, smjör og osta svo eitthvað sé nefnt. Allir sem fara í matvöruverslanir þekkja vörur Mjólkursamsölunnar sem taka mestallt hillupláss kælanna og erfitt getur reynst að finna mjólkurvörur frá öðrum framleiðendum og oft eru þær ekki fáanlegar nema í litlum sérverslunum.
Án neytenda enginn markaður
Það er hollt fyrir okkur sem neytendur að spyrna við fótum og sýna með því móti hver það er sem ræður í raun og veru. Það er nefnilega svo að við neytendur getum haft áhrif á framleiðendur, vörur og verð með því að sýna samstöðu í verki. Það erum við sem höldum þessum fyrirtækjum gangandi með kaupum og neyslu.
Við hvetjum jafnframt þá sem vilja fylgja fordæmi þessarar fjölskyldu að leyfa okkur að fylgjast með, því við hefðum mikinn áhuga á að vita hvernig fólki tekst til. Þegar við spurðum Jódísi án nokkurs formála hvort hún og fjölskylda hennar væru til í að sniðganga vörur MS í eina viku var svarið afdráttarlaust.
Já!
Við spurðum hana í framhaldinu hver viðbrögð hennar hefðu verið við þeim upplýsingum sem nú eru á allra vörum um starfshætti Mjólkursamsölunnar og hún svaraði að bragði:
Ég fylltist reiði þegar ég sá fréttir um málið.
Hvaða vörur frá MS eru mest keyptar á ykkar heimili?
Mjólk, jógúrt, skyr og rjómi.
Hvernig haldiði að unga fólkið taki því að slíkar vörur séu ekki til á heimilinu?
Í verslunarleiðangri dagsins varð okkur ljóst, er við störðum í mjólkurkælinn, hversu óeðlilegt ástandið á þessum markaði er. Við höfðum ákaflega takmarkað val um sambærilegar vörur frá öðrum fyrirtækjum og slepptum því að kaupa vörur sem annars hefðu farið í körfuna. Börnin verða líklega undrandi þegar ekki verður gul eða blá mjólk í ísskápnum.
Munuð þið leitast við að kaupa vörur frá öðrum mjólkurframleiðendum eða sleppa mjólkurafurðum alveg?
Við munum líklega draga talsvert úr neyslu mjólkurvara en eitthvað munum við nýta frá öðrum framleiðendum. Við Guðrún notum mjólkurvörur mun minna en börnin. Aðallega út í kaffi, við bakstur og eldamennsku.
Við munum heyra frá þessari fjölskyldu að viku liðinni og fá að vita hvernig tilraunin gekk og hvort hugsanlega er hægt að lifa góðu lífi án þess að styrkja einokunarfyrirtækið Mjólkursamsöluna.