Sú lífsreynsla að missa barna á meðgöngu eða eftir fæðingu, bindur fólk saman þvert á alla þjóðfélagshópa og eins þungbær og þessi reynsla er, er ákveðin huggun í þeirri tilhugsun að við getum tekið saman höndum og reynt eftir fremsta megni að gera foreldrum sem missa í framtíðinni – kleift að eiga dýrmætar stundir með börnunum sínum og eignast um þau fallegar minningar.
Söfnun Gleym mér ei fyrir Kælivöggum gengur framar vonum, nú er kominn rúmur helmingur fjársins – eða 420.000 krónur. Kælivöggur kæla niður líkama andvana fæddra barna og gera foreldrum kleift að vera með börnin hjá sér í 48 tíma. Þetta auðveldar mörgum foreldrum að takast á við barnsmissinn.
Gleym mér ei styrktarfélag vill þakka öllum þeim sem þegar hafa styrkt söfnunina. Gleym mér ei er með Facebook síðu sem við hvetjum alla til fylgja.
Foreldrar á öllum aldri og velunnarar hafa lagt inná söfnunina og sumir setja í skýringar nafn barnsins sem þau eignuðust – og er þessi nafnalisti okkur mjög kær – þótt það sé á sama tíma erfitt að lesa hann, vitandi hversu margar fjölskyldur hafa misst börnin sín.
Bingó til styrktar söfnuninni verður haldið 6. nóvember kl. 20 í Frumkvöðlasetrinu Eldey í Ásbrú á Reykjanesi og hvetjum við alla til þess að mæta, vinningar eru m.a.
* Gisting fyrir 2 ásamt kvöldverði og morgunmat á Hótel Laki
* gisting fyrir 2 ásam