Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Opið og afskaplega kurteislegt bréf til ríkisstjórnar Íslands og fjármála- og efnahagsráðherra alveg sérstaklega

$
0
0

Fjórar rafrænar spurningar

Til að sækja um leiðréttingu verðtryggðra fasteignaveðlána og ráðstöfun á séreignarsparnaði þurfti að skrá sig inn á lokað vefsvæði á vefnum leidretting.is. Flestir nýttu sér veflykil RSK við innskráningu, en einnig var hægt að nota rafræn skilríki á debetkorti, snjallkorti eða farsíma.

Þegar sótt var um húsnæðislánaleiðréttinguna skráðu umsækjendur sig inn á vefinn leidretting.is og notuðu veflykil sem allir fá eða geta fengið ókeypis hjá Ríkisskattstjóra.

Nú er gert ráð fyrir því að niðurstöður skuldaleiðréttingar verði tilkynntar í næsta mánuði á sama vefsetri og með sama veflykli. Frá því að leiðréttingarupphæðir verða birtar mun fólk eiga að hafa 90 daga til að undirrita og samþykkja niðurstöðurnar – en til þess (eins og málum er nú háttað) verður veflykillinn frá Ríkisskattstjóra ekki nógu góður, heldur er þess krafist að fólk staðfesti samþykki sitt með rafrænum skilríkjum frá einkafyrirtækinu Auðkenni samkvæmt ákvörðun fjármála- og efnahagsráðuneytisins.

1. Af hverju dugir ekki veflykillinn frá RSK sem dugði til að sækja um leiðréttingu til þess að samþykkja hana?

2. Af hverju dugir ekki venjuleg undirskrift?

3. Og hvernig getur ríkið skyldað þegna sína nauðuga viljuga í viðskipti við einkafyrirtæki hvort sem það heitir Auðkenni eða eitthvað annað?

4. Er ekki rétt að fjármálaráðuneytið taki sönsum og veiti fólki eðlilegan og óhindraðan aðgang að því að undirrita þessa leiðréttingu hvort heldur sem er á hefðbundinn hátt eða rafrænan?


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283