Hefurðu gaman af því að syngja og langar þig að syngja með öðrum? Þá er tækifærið ekki langt undan því dægurlagasönghópurinn Serious Singers býður nýja félaga velkomna.
Guðný María Arnþórsdóttir er stofnandi dægurlagasönghópsins Serious Singers.
„Ég byrjaði með hópinn heima hjá mér undir stjórn Kára Friðriksssonar og hafði hugsað um það lengi að stofna svona hóp. Nágrönnum mínum þótti skemmtilegt að heyra í okkur við æfingarnar svo það gaf mér kjark til að halda áfram. Við tróðum upp í fyrsta sinn opinberlega um síðustu helgi hjá Lionskonum í Víkingaheimilinu og slóum þar í gegn“ .
Núna hefur hópurinn sem er fólk á öllum aldri fengið æfingahúsnæði að Árskógum 4 og hittist við æfingar einu sinni í viku. Serious Singers sem taka sönginn alvarlega eins og nafnið bendir til bjóða nýja félaga velkomna og hvetja fólk til að slást í hópinn þótt þeir lesi ekki nótur eða séu ekki tónlistarmenntaðir.
Við erum að þessu til að skemmta okkur og vonandi öðrum sagði Guðný María að lokum.
Setjið ykkur í samband við Serious Singers á Facebook eða hafið samband við Guðnýju Maríu í síma:691 2425.