Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Verða blaðamenn DV látnir borga málskostnað?

$
0
0

Í úttekt á stöðu DV sem Eggert Skúla­son og Eygló Jóns­dótt­ir almannatenglar unnu fyr­ir út­gáfu­stjórn DV kemur ýmislegt merkilegt í ljós meðal annars það að uppi eru hugmyndir um að blaðamenn standi sjálfir straum af kostnaði vegna málaferla sem blaðið kann að lenda í vegna skrifa þeirra.

„Hér kæmi fyllilega til greina að blaðamenn taki á sig hluta af þeim kostnaði sem verður til vegna málssóknar á hendur útgáfunni, vegna þeirra skrifa. Slík þátttaka yrði aldrei meiri en táknræn, en þó þannig að hún gæti tekið mið af einum mánaðarlaunum, eins og þekkt er hjá öðrum fjölmiðlum.“

Í úttektinni stendur einnig:

„Það er eftirspurn eftir fjölmiðli eins og DV, sem tekur á viðkvæmum og oft umdeildum málum. En slíkur fjölmiðill dansar á línunni og þarf stöðugt að vanda sig. Og hann þarf að fara að lögum. Enginn útgáfa hefur fjárhagslega burði til að greiða háar fjárhæðir í skaðabætur og/eða til lögmanna. Útgáfufélag DV hefur greitt milljónatugi á undanförnum árum í þessu skyni og það hefur leikið fjárhag blaðsins illa. Slíkt getur ekki gengið áfram.“

Yfirstjórn DV er greinilega vandi á höndum og hafa menn þar á bæ áhyggjur af áliti ákveðinna hópa [Lesist Framsóknarflokknum]á fjölmiðlinum og hyggjast takast á við þann ímyndarvanda. Í úttekt Eggerts og Eyglóar segir ennfremur:

„Stórum hópum í íslensku samfélagi er hreinlega illa við fjölmiðilinn. Kemur þar margt til. Starfsfólk kannast við þetta og þetta viðhorf er mjög hamlandi fyrir DV, bæði í auglýsingasölu og ekki síður birtist þetta í því að áskriftir ná sér ekki á flug og lestur blaðsins hefur farið þverrandi hin síðari ár. Lesendum og ýmsu fjölmiðlafólki, sem rætt hefur verið við fyrir þessa úttekt, finnst sem blaðið hafi verið fært meira út á jaðarinn en góðu hófi gegnir og efnistök þess og stundum skoðanir stríði þess vegna á móti lífsskoðunum stórs hóps lesenda. Fer það illa saman við meginmarkmið blaðsins um að starfa í samræmi við áhuga almennings.“


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283