Vín vikunnar er djúprautt að lit með ilm af rauðum berjum, sultuðum plómum og kryddum. Í munni er gott jafnvægi á milli sætra ávaxtatóna og silkimjúkra tannína. Nafnið á víninu stendur fyrir ástríðu og tilfinningar og er hugsað sem óður til borgar ástarinnar, Verona. Vín vikunnar er frá Veneto og heitir Famiglia Pasqua Passimento 2010.
Veneto er vínhérað á Norðaustur-Ítalíu, eitt af þekktari svæðum landsins, og er í nágrenni við borg ástarinnar, Verona. Veneto er þekktast fyrir þrjár víntegundir; rauðvín frá Valpolicella (sem margir Íslendingar þekkja), hvítvín frá Soave og ekki síst fyrir háklassavínin Amarone.
Vínhúsið Pasqua hefur getið sér gott orð hér á landi fyrir gæðavín sem lengi hafa verið fáanleg í vínbúðunum á viðráðanlegu verði. Pasqua er líka heimsþekkt fyrir Amarone-vínin sín en þau eru búin til með sérstakri aðferð sem heitir Appassimento. Þegar vín er búið til með þessari aðferð eru þrúgurnar tíndar af vínviðnum og settar á trébretti, síðan raðað í þurrkhjalla og þurrkaðar í ákveðinn tíma. Samkvæmt reglum um víngerð á Ítalíu mega vín aðeins heita Amarone ef þessari aðferð er beitt og ákveðnar heimaræktaðar þrúgur eru notaðar í vínið. Pasqua framfylgir þessum reglum samviskusamlega við gerð Amarone.
Við framleiðslu á víni vikunnar er þessi sama aðferð notuð að öllu leyti nema einu; þrúgurnar sem notaðar eru í það eru aðrar en í Amarone. Það má því kannski segja að Famiglia Pasqua Passimento sé litli bróðir Amarone. Litli bróðir sem kostar einungis brot af því sem stóri bróðir kostar. Vín gert með sömu aðferð en úr alþjóðlegum þrúgum eins og Merlot og staðbundnum þrúgum sem heita Croatina og Corvina.
Pasqua er stærsta fjölskyldurekna víngerðin á Ítalíu og hefur þróað vín undir sama nafni í meira en 100 ár. Mörg þeirra hafa meira að segja unnið til alþjóðlegra verðlauna. Pasqua-fjölskyldan hefur lengi verið í fremstu röð víngerðarfólks frá þessu svæði bæði á Ítalíu og alþjóðlegum vettvangi. Nafnið Passimento stendur fyrir Passione e Sentimento (ástríða og tilfinningar) og er hugsað sem óður til borgar ástarinnar, Verona. Ekki bara vegna sögu hennar og minnismerkja heldur líka vínanna sem þar eru gerð.
Famiglia Pasqua Passimento 2010 er gott með rauðu kjöti hvers konar, lambi, nauti eða villibráð. Það hentar líka vel með ostum, sérstaklega gömlum og bragðsterkum. Þetta vín er tilvalið með jólamatnum (þó varla sé tímabært að fjalla um það strax). Nýlega lækkaði verðið á þessu víni í vínbúðunum nokkuð duglega, úr 2.690 niður í 2.290 sem gerir vínið að einhverjum bestu kaupum í vínbúðunum um þessar mundir þegar tekið er tillit til gæða og verðs.
Það fæst í fjórum búðum, Kringlunni, Heiðrúnu, Hafnarfirði og Skútuvogi, en er auðveldlega hægt að panta í öðrum búðum. Fleiri vín frá þessu húsi eru fáanleg í vínbúðunum og óhætt að mæla með þeim öllum, sérstaklega lífræna kassavíninu.