Þann 5. nóvember setti ég í gang smá könnun á vefnum þar sem ég spurði fólk hvort launin þeirra dygðu þeim út mánuðinn. Eftir aðeins tvo sólarhringa höfðu 621 tekið þátt í henni og niðurstöðurnar eru hreint út sagt sláandi.
Það er óhugnalegt að sjá að yfir 500 af þeim sem hafa tekið þátt af 621 skuli klára launin sín á fyrsta degi mánaðarins eða strax á útborgunardegi.
Ég átti ekki von á öðru en fólk næði að láta útborgunina endast í amk tvær vikur svo þetta kemur verulega á óvart og manni er í raun mjög brugðið við þessar niðurstöður.
Þetta er vissulega ekki nein vísindaleg könnun og það þarf nauðsynlega að gera eina slíka af aðilum eins og Capacent eða MMR til að fá marktækar niðurstöður. Í slíkri könnun þyrftu í það minnsta 2.000 manns að svara svo hún gæfi nokkuð skýra mynd og væri sæmilega marktæk.
Ég verð samt að furða mig á því hvers vegna enginn fjölmiðill eða stofnun sem tekur skoðanakannanir hér á landi, hefur látið detta í hug að gera svona könnun því það er svo sannarlega full þörf á því ef marka má þau svör sem komin eru þegar þetta er skrifað.
Ég vil því hvetja fólk til að taka þátt í þessari könnun til að fá heilstæðari mynd á hana en ég mun hafa hana opna eitthvað fram í desember. Ég hefði gjarnan viljað fá alla vega 1.500 til 2.000 svör svo hægt sé að fá marktækari niðurstöður.
En… séu þessar niðurstöður úr minni könnun nærri sannleikanum þá eru þær áfellisdómur yfir þeim sem nú stjórna þessu landi en líka þeim sem stjórnað hafa síðasta áratug hið minnsta.
Þeir sem lesa bloggið mitt koma úr öllum stéttum þjóðfélagsins og því má alveg reikna með að þessar niðurstöður séu marktækar.
Könnunina má nálgast hægra megin á forsíðu á blogginu mínu, http://jack-daniels.is