Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Árstíðir lífsins

$
0
0

Mörgum finnst janúar og febrúar alveg sérlega leiðinlegir mánuðir.  Skammdegið er mikið og frídagar engir. Þessum hugsanahætti þarf að breyta. Taktu á móti janúar og febrúar með bros á vör og notaðu þennan tíma til að plana fram í tímann og setja þér markmið.

Þetta er spennandi tími. Haltu boð og partý, bjóddu fólki í mat, haltu spilakvöld og farðu út á lífið. Þannig líður tíminn hratt og vorið er komið áður en þú veist af.

Ég nota sjálf janúar til að vinna í markmiðunum mínum og ég býð vinum og vandamönnum í heimsókn og í matarboð og ég er svo spennt í janúar að hann líður í raun allt of hratt.
„Pollýanna“ ræður ríkjum í febrúar, það er svo stuttur mánuður og líður svo hratt. Mars með daga eins og Bollu-, Sprengi- og Öskudag og að sjálfsögðu Hönnunarmars, sem býður uppá endalausa afþreyingu. Páskarnir eru í apríl og svo er bara komið vor!

Ég las eitt sinn bók sem hafði mikil áhrif á mig um árstíðir lífsins og þar segir; ,,Þú getur ekki breytt árstíðunum en þú getur breytt viðhorfum þínum.” Veturinn er tíminn til að vinna í sjálfum sér, verða betri og hæfari. Það er sniðugt að sækja námskeið og annað slíkt á veturna sem gerir mann hæfari til að njóta og taka á móti vorinu. Notaðu því veturinn til persónulegs þroska.

,,Ekki óska þess að hlutirnir séu auðveldari, óskaðu þess að þú sért betri.  Ekki óska eftir færri vandamálum, óskaðu þess að þú hafir fleiri hæfileika. Ekki óska eftir færri áskorunum, óskaðu þér meiri visku,”, segir í bókinni góðu og verðum við ekki öll að taka undir það.

Faðmaðu veturinn að þér og þá verður vorið betra því eitt er víst að það mun ávallt koma vor á eftir vetri. Vorið er sá tími sem margir halda upp á. Það færir okkur birtu og yl í kroppinn svo það er ekki hægt annað en að fagna því. Vorið er einnig tími tækifæranna, svo nýttu þau.

Ef þú vilt að hagur þinn og þú sjálf(ur) lítir vel út í haust, þá er vorið rétti tíminn til að sá. Hafðu því nóg að gera á vorin.
Það er nægilega mikið vor handa okkur öllum. Bítlarnir sungu „Lífið er svo stutt“, og fyrir John Lennon sem gekk um stræti New York borgar, voru það orð að sönnu.

Á sumrin þarftu að hugsa um garðinn þinn og passa uppskeruna. Þú getur verið viss um það að um leið og garðurinn þinn er orðinn fallegur og stendur í blóma þá kemur arfinn og illgresið og reynir að skemma garðinn þinn. Og það mun takast, nema þú hindrir það. Hluti þess að ná árangri er að læra að vernda það sem þú hefur skapað. Og það er mikilvægasta nám sumarsins. Mundu að njóta sumarsins, birtunnar sem umlykur okkur allan sólarhringinn og farðu út í náttúruna sem fyllir þig orku.

Haustið er sú árstíð sem við fáum uppskeru vors og sumars og hægt er að greina þroska okkar með því að líta á getu okkar til að taka ábyrgð á uppskerunni. Það sýnir einnig þroska að geta tekið uppskeruna og notað hana til að ná í frekari uppskeru að ári. Að taka fulla ábyrgð er hæsta form mannlegs þroska – og eitt það erfiðasta.
Það er dagurinn sem þú verður fullorðin(n).
Njótið!


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283