Quantcast
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Lífsreglurnar á Facebook

Fór inn á Facebook og komst að eftirfarandi:

Ég þarf að hætta að drekka uppáhalds teið mitt þar sem það er fullt af einhverju eitri.

Ég og fjölskylda mín verðum að hætta að borða hefðbundinn mat þar sem hann er fullur af eitri (bjúgu eða pylsur skolaðar niður með dísætri kókómjólk eru í miklu uppáhaldi á mínum bæ).

Fyrirsætur 10 sinnum mjórri en ég eru flokkaðar sem „plus size model“.

Ég verð að vera betri í markmiðasetningu til að halda mér heilbrigðri (lesist mjórri).

Ég á að sofa meira en Haffi (konur þurfa meiri svefn en karlar), væntanlega mun það einnig gera mig heilbrigðari (lesist mjórri).

Vinir mínir eru annaðhvort í útlöndum í sólbaði, að kafa í tærum sjó eða á skíðum í fallegu og björtu umhverfi, nú eða að hlaupa maraþon eða bara hjóla og hjóla heil ósköp.

Börn vina minna eru ekki bara falleg, þæg og til fyrirmyndar heldur líka ferlega klár.

Mitt barn á vini sem skjóta upp rakettum úr rassinum á sér (hvað er nú það?)

…en það er ljós í myrkrinu – byrja að drekka sítrónuvatn alla daga og þá mun líf mitt gjörbreytast!


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283