Guðrún Guðlaugsdóttir skrifar:
Konur, nú þarf að skera upp herör gegn þeirri þróun að konum, sem komnar eru nálægt breytingaskeiði og eldri, séu gjaldfelldar og reknar unnvörpum úR vinnu. Þessi þróun er að verða æ meira áberandi. Ég hef séð margar konur grátt leiknar vegna þessa upp á síðkastið, svo sem skúringakonur stjórnarráðsins.
Fyrsta slíka hópatvikið sem ég man eftir í fljótu bragði var þegar bankastjóri, sem síðar var dæmdur fyrir fjársvik, skipti út að mig minnir um fimmtán konum og réð ungar konur til þess að „létta yfirbragð“ afgreiðslustaðar umræddrar bankastofnunar. Þannig var í það minnsta inntak þess sem hann lýsti yfir þegar hann hafði rekið konurnar. Ég var í viðskiptum við þennan banka og sá á eftir mörgum starfskonum sem höfðu aðstoðað mig í gegnum árin. Þær ungu voru þó nokkuð lengi að komast með tærnar þar sem þær eldri höfðu haft hælana.
En þetta er einmitt málið. Það má ekki gera heiðarlegum og trúum starfskonum þessa svívirðu fyrir þær sakir einar að eldast. Það má heldur ekki gera nokkru fyrirtæki það að reka burt þrælskólaðar konur til eins þess að „yngja yfirbragðið“ – og auðvitað spara. „Við erum gömul og dýr,“ sagði einn ágætur samstarfsmaður minn sem var látinn fara úr sinni vinnu.
Yngri konur þurfa nú að koma þeim eldri til liðs svo þessari þróun verði snúið við. Karla eiga ekki að hafa ákvörðunarvald til þess að reka konur sem komnar eru á fimmtugsaldur og vinna vel. Þeir eiga að hafa þann manndóm að meta starfsreynslu kvenna og þá greind að skilja að konur yfir fimmtugt eru afskaplega góður vinnukraftur. Þær eru yfirleitt heilsugóðar, áhugasamar, reyndar og klárar í sínu starfi. Við hlið þeirra á svo að ráða ungar konur, sem síðar komast í þann flokk að verða heilsugóðar, áhugasamar og svo framvegis … Til þess að snúa þessari hættulegu æskudýrkunar- og sparsemisþróun á vinnustöðum við, þurfa konur að sýna samstöðu og kjark.
Við hinar eldri börðumst fyrir kvenréttindum, klæddum okkur í rauða sokka og vildum frelsi til að vinna utan heimilis og ruddum þannig brautina fyrir þær konur sem nú eru heitastar á vinnumarkaðinum. Nú þurfa valkyrjur nútímans að koma hinum eldri til hjálpar. Utan yfir bleiku eða rauðu sokkana þurfa hinar vösku, ungu konur að vera í sæmilegum gönguskóm til þess að halda brautinni opinni fyrir þær sem eldri eru. Ástandið á vinnumarkaðinum er mun verra en það var á tímum rauðsokka hvað konur snertir. Það veitir ekki af að konur á öllum aldri taki höndum saman.
Skerum upp herör gegn þeirri þróun að hrekja æ fleiri konur sem komnar eru af léttasta skeiði út af vinnumarkaðinum. Í stað þess að gjaldfella konur á þessum aldri ber að sýna þeim virðingu og borga þeim vel. Þær hafa staðið vaktina með ágætum.
—-
Guðrún Guðlaugsdóttir er blaðamaður og skáldkona í Reykjavík. Nýútkomin er skáldsaga hennar Beinahúsið. Í kvöld gefst glæpasagnaunnendum færi á að hitta Guðrúnu og fleiri glæpasagnahöfunda á veitingahúsinu Sólon. Höfundar lesa úr bókum sínum og leikinn verður glæpadjazz. Hér má skoða viðburðinn á Facebook en glæpakvöldið hefst klukkan 20.00.