Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Smástrákar í stórustrákaleik

$
0
0

Bílablæti manna sem gefa sig út fyrir að vera foringjar og stjórnendur en eru ekkert annað en smástrákar í stórustrákaleik vekur sumpart hroll meðal almennings og sumpart aðhlátur.

Bílablætið á sér langa sögu, rétt eins og laxveiðiferðirnar, utanlandsreisurnar og risnan, auk draumsins um að fá Elton John til að syngja í afmælinu sínu, brúðkaupinu eða veislunni. Á fyrri öldum „riðu hetjur um héruð“, það voru svona plebbar umkringdir stórum hópum meðvirkra jámanna og höfðu yndi af því að ríða yfir túnin hjá smábændum eða trufla þá frá heyskap eða smalamennsku og skipa þeim að koma með sér í blóðuga MMA-bardaga þar sem menn lömdust á í heilan klukkutíma eða svo með spjótum, sverðum og grjóti.

"Forsætisráðuneytið hefur augastað á tveimur bílum sem ráðherrabíl fyrir Sigmund Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra. Valið stendur á milli BMW 7-línunnar og Mercedes-Benz S-Class en þessir lúxusbílar kosta um 20 milljónir hvor samkvæmt verðlistum. Búast má við að forsætisráðuneytið taki ákvörðun á næstunni hvor bíllinn verður fyrir valinu." Heimild: Viðskiptablaðið.

„Forsætisráðuneytið hefur augastað á tveimur bílum sem ráðherrabíl fyrir Sigmund Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra. Valið stendur á milli BMW 7-línunnar og Mercedes-Benz S-Class en þessir lúxusbílar kosta um 20 milljónir hvor samkvæmt verðlistum. Búast má við að forsætisráðuneytið taki ákvörðun á næstunni hvor bíllinn verður fyrir valinu.“ Heimild: Viðskiptablaðið.

Allir vilja vera eins og Elísabet!

Stóra fyrirmyndin að bílablæti barnalegu drengjanna er frú Elísabet í Englandi sem út á forfeður sína og formæður á móður allra flottræflafarartækja og umhverfisvænt að auki. Enginn Landrover, Bimmi eða Benz getur keppt við gullvagn frú Elísabetar, hvað þá að taki að nefna Landcruiser eða einhverjar japanskar eða kóreskar hrísgrjónadollur sem bara mislukkaðir millistjórnendur láta sjá sig á.

Elísabet Englandsdrottning.

Elísabet Englandsdrottning.

Þessi kvenlega löngun stráka sem vilja vera stórir að líkjast frú Elísabetu í Englandi er sumpart hrífandi og falleg, en þar sem hún er gríðarlega kostnaðarsöm fyrir almenning og vísbending um að svona peyjar séu ekki að hugsa um hag almennings né heldur þeirra fyrirtækja eða stofnana hverra forsjá þeim er falin væri réttast að taka af þeim leikföngin, öllum með tölu og segja þeim að fara að vinna – annars verði þeir flengdir og sendir í rúmið án þess að fá kvöldmat.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283