Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Lærdómurinn af lekamálinu

$
0
0

Forsætisráðherra, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, segir að þjóðin þurfi að læra af lekamálinu. Ég er því alveg sammála. Við verðum að hætta að kjósa yfir okkur fólk sem ræður ekki við ábyrgð.

Sigmundur segir að gengið hafi verið fram af mikilli grimmd og jafnvel ódrengskap gegn Hönnu Birnu. Það er nákvæmlega þannig sem mér leið þegar saksóknari, blindaður af hatri, réðst ódrengilega á félaga minn í réttarsal út af smá ölvunarakstri. Það var ótrúlegt að fylgjast með því hvað komið var fram við hann af mikilli grimmd og hvernig hann missti vinnuna sína í kjölfarið alveg að ósekju. Bara smá dómgreindarskortur af hans hálfu og búmm – afleiðingar.

Eins og Hanna Birna er fórnarlamb hatursumræðu eftirhrunsáranna þá varð þessi félagi minn fórnarlamb vegna þess að einhverjir höfðu brennt sig á því að fullir ökumenn keyrðu stundum yfir annað fólk. Ef hér hefði ekki orðið hrun, með þeirri reiði sem fylgir, þá væri Hanna Birna enn ráðherra og ef fullt fólk ætti það ekki til að keyra yfir gangandi vegfarendur þá væri þessi félagi minn enn þá sendibílstjóri.

„Ég held að það sé ástæða fyr­ir alla til þess að hafa áhyggj­ur af því hvernig þjóðfé­lagsum­ræðan hef­ur þró­ast. Hún er auðvitað af­leiðing af ákveðnum tíðaranda sem hef­ur verið ríkj­andi und­an­far­in ár. En sá tíðarandi er ekki til þess fall­inn að byggja upp og gera sam­fé­lagið betra,“ segir Sigmundur Davíð.

Ef öryggi í umferðinni eykst með því að þeir sem keyri ölvaðir þurfa að mæta afleiðingum gjörða sinna þá eykst að sama skapi öryggi íbúa landsins með því að innanríkisráðherra þurfi að taka afleiðingum sinna gjörða. Valdi fylgir ábyrgð. Hvort sem þú ert að keyra bíl eða taka ákvarðanir sem varðar líf fólks.

Núna fer að nálgast desember. Hanna Birna sagði í afsagnarbréfi sínu ætla að taka sér frí fram að áramótum. Mikið er ég feginn því að félagi minn sem keyrir fullur hafði ekki möguleikann á því að segjast ekki ætla að keyra fram að áramótum og sjá svo til.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283