Fyrirtækið Engilberts-hönnun var stofnað í janúar 2014 með það að markmiði að hanna og selja fallega hannaðar listrænar vörur.
Stofnendur þess eru hjónin Greta Engilberts og Hjörtur Sólrúnarson en bæði eru þau miklir fagurkerar og ákaflega hugmyndaríkir listamenn. Þau eiga hæfileikana ekki langt að sækja, allavega ekki Greta en hún er dótturdóttir listamannsins Jóns Engilberts.
Þau Greta og Hjörtur byrjuðu þau að þróa konsept upp úr myndum sem Jón Engilberts málaði við ljóð Jónasar Hallgrímssonar, en mikið af hönnun Engilberts-hönnunar er byggð á listaverkum eftir Jón. Það er einlæg ósk Gretu að list hans öðlist nýtt líf og fái að lifa áfram þannig að sem flestir geti fegið tækifæri til að njóta hennar.
Meðal þess sem hjónin hanna og selja eru klæði, skartgripir, heimilisvörur, húsgögn og klútar. Þau einbeita sér sérstaklega að gerð bekkja og kolla sem þau hanna og framleiða að mestu sjálf úr íslenskum við og gæru af íslensku landnámsgeitinni. Greta og Hjörtur vilja nota íslenskan efnivið eins mikið og þau geta í allt sem þau gera.
Vörur frá Engilberts-hönnun hafa verið seldar í verslunum og hönnunarbúðum víða um landið en nú hafa þau hjónin opnað vefverslun á heimasíðu fyrirtækisins. Vefverslunina er hægt að skoða hér.