Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Sykurlausar súkkulaðitrufflur – uppskrift

$
0
0

Nú nálgast jólin og margir sem hittast og gera saman konfekt fyrir jólin. Trufflur eru ómótstæðilega góðar, mjúkar og bragðmiklar og geggjaðar með kaffinu. Margir hafa tileinkað sér sykurlausan lífsstíl og þá vandast málið ofurlítið því mikið af því súkkulaði sem er á boðstólum er með viðbættum sykri.

BALANCE TABLET STEV PUUR

Belgíski súkkulaðiframleiðandinn Klingele framleiðir Balance-súkkulaðið sem er án viðbætts sykurs og er sætt á náttúrulegan hátt með Stevia-jurtinni. Það hentar vel fyrir sykursjúka og alla þá sem vilja minnka sykurneyslu eða sneiða algerlega hjá sykri.

BALSTLUXTABMEPA

Arka heilsuvörur  flytja Balance-súkkulaðið inn. Balance-súkkulaðið er til í talsverðu úrvali bæði dökkt og ljóst og einnig lúxuslína þar sem meðal annars má finna dökkt súkkulaði með appelsínubragði.

BALSTLUXTABPS

Þar sem súkkulaðið er sætt með stevía-plöntunni er það einstaklega kolvetnasnautt. Appelsínusúkkulaðið inniheldur einungis 16 g af kolvetnum í 100 g.

Súkkulaðiappelsínutrufflur hljómar hreint ekki illa …

Hér er mjög einföld uppskrift að sykurlausum trufflum:

chocolate-truffles-b

 

Sykurlausar súkkulaðitrufflur

200 g dökkt Balance-súkkulaði – gott að nota appelsínusúkkulaðið ef þið viljið appelsínubragð.

1 dl rjómi

100 gr dökkt Balance-súkkulaði til að hjúpa ef þið viljið. Eins er gott að velta trufflunum einungis upp úr kakódufti.

Aðferð:
1. Saxið súkkulaðið smátt.

2. Hitaðu rjómann vel en passið að hann sjóði ekki.

3. Setjið súkkulaðið út í heitan rjómann og hrærið stöðugt í þar til blandan er orðin mjúk og gljándi.

4. Hellið blöndunni í grunna skál og kælið svo í ísskáp.

5. Blandan stífnar. Þegar hún er orðin nægilega stíf eru mótaðar úr henni litlar kúlur.

6. Veltið kúlunum upp úr súkkulaðispæni eða kakó. Geymið í ísskáp í lokuðu íláti.

Kostuð kynning


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283