Quantcast
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Afsakið en þið megið troða þessari þjóðarsátt upp í púströrið á Range Rovernum ykkar

Menn tala mikið um stöðugleika þessa dagana. Eins og hann sé alltaf jákvæður. Ísland er að mörgu leyti eins og vinnufangabúðir. Þeir sem stýra þannig búðum hafa örugglega líka lagt mikið upp úr stöðugleika en fangarnir sjálfir verið minna hrifnir. Í mínum huga er algjör ringulreið mikið betri kostur en stöðugleiki.

Í ringulreiðinni þurfa allir að leggjast á eitt til að koma landinu í lag. Í stöðugleikanum hefur yfirstéttin það bara náðugt með sínar milljónir á mánuði og þeir sem hafa það ömurlegt fá að hafa það ömurlegt áfram. Ég vil því ekki halda í þennan stöðugleika, ekki frekar en ég vil halda í rafmagnsgirðingu.

Ég er orðinn þreyttur á því að það sé talið eðlilegt að heilbrigðis- og kennarastéttin sé láglaunafólk. Og mér finnst það algjörlega bilað þegar hálaunafólk talar um að ekki megi hækka laun stétta sem lengi hefur verið haldið niðri því það leiðir af sér launaskrið og verðbólgu.

Af einhverjum ástæðum, mér algjörlega óskiljanlegum, mun verðbólgan éta upp íbúðina mína ef starfsmenn sem vinna við að hjálpa eða kenna fólki fá launahækkun en ef stjórnendur og millistjórnendur fá launahækkun þá þýðir það bara að atvinnulífið er að taka við sér, hér ríkir hagvöxtur og ríkisstjórnin er að vinna stórkostlegt afrek.

Þegar forsætisráðherra og forystumenn atvinnulífsins tala svo um „þjóðarsátt“, það að stéttir hætti að berjast fyrir eðlilegum kaupum og kjörum til að halda óbreyttu ástandi, þá getur maður ekki annað en hrist hausinn. Af hverju eiga þeir sem hafa minnst á milli handanna að sætta sig við áframhaldandi ástand til að þeir sem hafa það best eigi von á því að hafa það enn betra?

Forsætisráðherra má éta þessa þjóðarsátt með rjúpunum sínum. Ég vil frekar nýja tegund af borgarastyrjöld. Ég kýs að kalla hana útborgunarstyrjöld og hvet ég alla til að gæta verulegs óhófs í launakröfum sínum.

Maður sættist ekki á það við menn með milljónir á mánuði að fá sjálfur rétt yfir 200 þúsund krónur. Það kallast aumingjaskapur. Ef menn halda að þeir geti sæst á það við þjóðina að hún sýni aumingjaskap þá held ég að mönnum muni bregða.

En ef menn vilja endilega einhvers konar þjóðarsátt væri gott fyrsta skref að þeir launahæstu sammældust um launalækkanir hjá sjálfum sér til að spyrna gegn þeim áhrifum sem menn áætla að hækkun launa lækna og launaskrið í kjölfar þess muni hafa á verðbólguna. Þá getum við byrjað að tala saman og sæst.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283