Önnur uppskriftin sem við birtum frá sigurvegara úr eftirréttasamkeppni Lindt er frábær súkkulaði mousse spariterta frá Fanndísi Þórisdóttur.
Súkkulaði mousse spariterta
Tertan inniheldur
2 súkkulaði mousse
2 marengs
1 vanillukrem
1 svampbotn
súkkulaði ganache topp
Lindt súkkulaði mousse
60 gr sykur
180 gr lindt 70% súkkulaði
100 gr rjómi
3 gelatine matarlímsblöð
6 egg (við stofuhita)
Súkkulaðið brætt yfir vatnsbaði (ca 48 gráður). Rjóminn hitaður næstum að suðu og gelatine blöðunum blandað út í (sem fyrst voru lögð í bleyti í kalt vatn). Rjómanum hellt yfir súkkulaðið í smá skömmtum ásamt eggjarauðunum, hrært vel saman. Stífþeytið eggjahvíturnar í ca 2 mín áður en sykrinum er bætt út í í litlum skömmtum, haldið svo áfram að stífþeyta. Hluta af eggjahvítunum er bætt út í súkkulaðiblönduna með „fold in“ aðferðinni, til að fá sem mest loft inní blönduna. Afgangnum af eggjahvítunum er síðan blandað saman við með sömu aðferð
Marengs
5 eggjahvítur
1/4 tsk vanilludropar
115 gr sykur
Eggjahvíturnar stífþeyttar í ca 2 mínútur, vanilludropunum síðan bætt út í og sykrinum í skömmtum. Haldið áfram að þeyta þar til eggjahvíturnar eru allveg stífþeyttar. Blöndunni skipt í 2 hluta á bökunarpappír og einn botn bakaður í einu í miðjum ofni við 110 gráður C í 1, 1/2 klst
Vanillukrem
42 gr smjör
4, 1/2 dl nýmjólk
1 vanillustöng
100 gr sykur
1 egg og 2 rauður
80 gr hveiti
3 gelatine matarlímsblöð
Mjólkin, helmingurinn af sykrinum (50gr) og vanillustöngin sett í pott og hitað að suðu. Vanillustöngin skorin í 2 og kornin sköfuð úr, kornin og stöngin sett út í mjólkina. Eggin, afgangurinn af sykrinum (50gr) og hveitið er þeytt vel saman. Þegar mjólkin hefur náð suðu er helmingnum blandað varlega saman við eggjablönduna, hrært allan tímann, svo er eggjablöndunni hellt út í restina af mjólkinni í pottinum. Þetta er gert til að koma í veg fyrir að við eldum eggin. Hrærið þar til blandan þykknar við lágan hita, lækkið svo hitann, bætið smjörinu út í, hrærið vel, sigtið og kælið.
Svampbotn
3 egg
2 dl sykur
1 dl kartöflumjöl
1 tsk lyftiduft
Eggjarauðurnar og sykur þeytt til létt og ljóst. Stífþeytið eggjahvíturnar sér. Þurrefnum og eggjahvítum bætt útt í eggjablönduna til skiptis með „fold in“ aðferðinni. Bakað við 175°C í ca 35 mín. Látið kólna, skerið botninn síðan í tvennt 2, (ég notaði samt bara annan botninn)
Súkkulaði ganache
1 pakki dökkt lindt súkkulaði trufflur
2 1/2 dl rjómi
Rjóminn hitaður að suðu og hellt yfir súkkulaðið, látið standa með viskastykki yfir í 5 mín án þess að hræra. Hrærið svo og látið standa í 15 mín þar til blandan er orðið aðeins þykkari, þá er henni hellt yfir kökuna.
Tertan sett saman
Lögunum er raðað í smelluform. Kældur svampbotninn kemur fyrst, svo lag af súkkulaði mousse, kælt þar til stíft. Þá er marengsinn lagður ofan á, svo vanillukremið, kælt þar til stíft. Seinni marengsinn lagður ofan á, og seinna lagjið af súkkulaði mousse. kælt þar til stíft. Þegar kakan er samansett og kæld er hún tekin úr smelluforminu og súkkulaði ganache hellt yfir, svo er hún kæld aftur til að súkkulaðið nái að stífna aðeins.