Freyja Eilíf Logadóttir er sjálfstætt starfandi myndlistarkona í Reykjavík sem opnaði á haustdögum listarýmið Ekkisens í kjallara ömmu sinnar á Bergstaðastræti 25B sem hefur verið starfandi síðan, en 13. desember opnaði hún sölusýningu þar á verkum ungra listamanna. Sú sýningin er opin alla daga frá 17-20 fram að jólum. Það er tilvalið að gera sér ferð þangað og skoða grasrótina og kaupa kannski einstakt listaverk til jólagjafa.
Inspired by Iceland
„Í garðinum fyrir utan listarýmið Ekkisens er stórt skúlptúrverk sem ég vann ásamt sambýlismanni mínum Guðbjarti Þór Sævarssyni árið 2013. Ég teiknaði ég mynd af verkinu og silkiþrykkti það í 300 eintökum í mörgum litum. Þetta verk er til sölu innrammað í Ekkisens á 1500 kr. stykkið, alveg einstökum spottprís. Tilvalið í jólapakkann“, segir Freyja.
Freyja Eilíf útskrifaðist úr myndlistardeild Listaháskóla Íslands í vor. Útskriftarverkið hennar var bókverkið „Litaðu og lærðu um íslenska nútímalist“. Þar teiknaði hún útlínumyndir eftir tæplega hundrað verkum eftir íslenska nútímalistamenn og úr varð bráðskemmtileg litabók sem á erindi á hvert heimili og skemmtileg gjöf fyrir krakka og fullorðna. Bókin kostar 3900 kr. og fæst í Ekkisens á Bergstaðastræti 25B og Kunstschlager.
Í byrjun desember opnaði Freyja Eilíf sýningu í glugga galleríinu Betra Veður á Laugavegi 41 sem verður opin til 29. desember en þar er að finna innsetningu sem unnin er úr sýnum fjölmargra einstaklinga á dánarbeði.
Freyja Eilíf tekur líka einatt upp pensilinn og málar myndir, þótt þær séu eilítið frábrugðar hinu hefbundna málverki.
„Ég hef mikinn áhuga á því að sameina efniviðinn sem ég nota í þeirri sögu sem ég vil segja. Í haust gerði ég málverk sem fjölluðu um hinu hinstu sæng. Úr varð portrettmyndasería sem ég málaði með bleki á gömul sængurver. Ég vildi milda tilhugsunina um dauðastundina svo að verkið fékk titilinn „Sænginni yfir minni“ – tilvísun sem tengist góðum minningum“
Myndirnar eru til sölu á jólasýningu Ekkisens og kosta 25.000.
Þrjár myndir úr áhugaverðri vaxmyndaseríu eru einnig til sýnis og sölu í Ekkisens.
„Þetta er sería sem ég hef verið að vinna með í tvö ár núna, portrettmyndir málaðar með lituðu kertavaxi af fólki í því ástandi sem titillinn segir til um. Þetta eru þær nýjustu. Það eru til svo mörg lýsingarorð yfir ástand ölvunar á íslensku að ég get líklega haldið áfram með hana næstu árin.“
Vaxmyndirnar kosta 50.000 kr.
Sýningin í Ekkisens verður opin fram að jólum. Þar má finna margvísleg verk eftir unga myndlistarmenn á viðráðanlegu verði.
„Jólasýningar myndlistarmanna eru orðnar að árlegum viðburði sem rétt eins og jólabókaflóðið boðar komu jólanna. Myndlist öðlast sífellt stærri sess í jólagjöfum Íslendinga og mun von bráðar deila honum til jafns við bókmenntirna. Í Ekkisens gefst fólki tækifæri á að fárfesta í verkum ungra listamanna á viðráðanlegu verði. Setjum myndlist í jólapakkann!“
„Draumurinn er að geta starfað sem myndlistarmaður. Svo að það markmið sé nær raunveruleika þá reyni ég að ráða mig einungis í hluta- og íhlaupastörf. Tíminn á vinnustofunni skiptir mig bara öllu máli… að sjálfsögðu er það launalaus vinna en svona verður það að vera. Í myndlistinni finn ég tilgang fyrir lífi mínu. Ég mun sjá eftir því á dánarbeðinu að hafa ekki helgað tíma mínum listinni. Það vil ég ekki“
Ljósmynd: Freyja Eilíf Logadóttir við verk sitt „Sýnir á dánarbeði“ á Laugavegi 41.
Ljósmyndari: Ernir Eyjólfsson