Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Dásamlegar appelsínu-brownies úr eftirréttakeppni Lindt

$
0
0

Við birtum nú seinustu vinningsuppskriftina úr Lindt-eftirréttasamkeppninni okkar. Þetta er uppskrift að appelsínu-brownies frá Sigurlaugu Ómarsdóttur.

lindt-orange-chocolate-bar

Innihald
200 gr smjör
1 pakki af lindt orange súkkulaðistykki
1 1/2 bolli sykur
3 egg
1/2 tsk salt
1 bolli hveiti

Aðferð
Hitið ofninn í 180 gráður. Bræðið saman smjör og súkkulaði og hrærið. Bætið sykri útí og svo eggjunum og hrærið vel. Salt og hveiti bætt varlega saman við. Smyrjið form og hellið deginu út í formið. Bakið í um 15 mínútur. Látið kólna og skerið í jafna ferninga.

brownies (1)


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283