Quantcast
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Kúrbíts vefjur með pestó og guacamole

Ég nota kúrbít mikið í minni matargerð. Ég get búið mér til alls konar skemmtilega rétti úr kúrbít og ég verð aldrei fyrir vonbrigðum. Í morgun vaknaði ég eldhress klukkan 8 og hef verið í frábæru skapi síðan þá. Mig langaði í eitthvað rosalega gott í hádegismat. Ég ákvað að búa mér til kúrbíts vefjur og gera pestó og guacamole til að setja innan í þær.

Ég byrjaði á því að búa mér til pestó úr sólþurrkuðum tómötum.

Hráefni:

1 Bolli sólþurrkaðir tómatar.
1/2 Bolli ferskur basil
1/4 Bolli furuhnetur (getið notað eitthvað annað eins og sólblómafræ, graskersfræ eða kashew hnetur en mér finnast furuhneturnar bestar í pestó)
1 hvítlauksgeiri
1/2 Tsk salt
2 tsk sítrónusafi
1/3 Tsk ólífu olía

Aðferð:

Allt sett saman í matvinnsluvélina fyrir utan ólífuolíuna. Henni er bætt útí á meðan allt hráefnið er að blandast.

Næst bjó ég mér til guacamole. Þar sem pestóið inniheldur olíu og hnetur ákvað ég að hafa guacomole-ið með óhefðbundu sniði og minnka fituinnihaldið til muna. Uppskriftina fann ég á facebook. Ég fór ekki nákvæmlega eftir henni, en svona nánast.

Hráefni:

1 Ferskur maisstöngull
3 Sellerístiklar
1 Rauðlaukur
4 Döðlur
5-6 Romain salatblöð
Blaðlaukur
Safi úr einni appelsínu
1/2 avókadó
Sólþurrkaðir tómatar úr kosti. Notaði bæði venjulega og svo nokkra sterka.

Aðferð:

Aðferðin kemur ykkur líklega ekki mikið á óvart. Allt sett í matvinnsluvél og blandað vel saman. Ég sauð maisstöngulinn ekki. skar bara af honum beint ofan í matvinnsluvélina.

þegar þetta var tilbúið skar ég niður þunnar sneiðar af kúrbít og litla bita af ferskum apríkósum, smurði pestó, guacamole og raðaði apríkósum á kúrbítssneiðina. Vafði henni upp og notaði tvo tannstöngla til að festa hana saman.

Þessar vefjur komu á óvart og voru alveg rosalega góðar.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283