Forsíðufrétt Akureyri vikublaðs 15. janúar 2015 birt hér með góðfúslegu leyfi höfundar og ritstjóra Akureyri vikublaðs.
Björn Þorláksson skrifar:
Búist er við að boðað verði til borgarafundar í Grímsey á næstu dögum þar sem alvarleg staða byggðar og atvinnulífs í eynni verður til umræðu. Íslandsbanki hefur um skeið lengt í lánum útgerðarmanna sem eiga helstu veiðiheimildir sem nýttar eru í eyjunni. Nú er komið að skuldadögum.
Hefur bankinn samkvæmt heimildum blaðsins talað fyrir sölu kvóta til að fá lán endurgreidd. Ef það gengur eftir gæti staðbundin búseta íbúa sem byggja veru sína í eynni á sjávarútvegi farið í uppnám.
Atvinnuþróunarfélag Eyjafjarðar, Akureyrarbær og Byggðastofnun eru meðal stofnana auk bankans sem hafa fundað síðustu vikur og leitað lausna auk heimamanna en án niðurstöðu. Búist er við að á borgarafundinum verði íbúum gert ljóst að framhaldið sé að miklu leyti í þeirra höndum.
Árin 2005-2006 seldi stærsti kvótaeigandinn í eynni miklar veiðiheimildir og hætti útgerð. Aðrir brugðust við með því að kaupa aflaheimildirnar, ekki bara hans eigin heldur fleiri. Voru kaupin að mestu leyti fjármögnuð með lánsfé. Þegar kvótaskerðing átti sér stað árið 2007 fór að halla undan fæti. Með hruninu og gengisfalli krónunnar hefur sjálfbærni fiskveiða sem höfuðatvinnustoðar Grímseyinga verið teflt í hættu.
Það sem gæti riðið baggamuninn nú hvað varðar framtíð sjávarútvegs er að upp kom kynferðisbrot þar sem gerandi tengist útgerð í eynni. Heimamenn segja að sá maður eigi ekki afturkvæmt til Grímseyjar. Ef heimamenn eða þeir sem vilja áfram útgerð í Grímsey hafa ekki burði til að kaupa kvóta brotamannsins og halda í eynni gæti það haft mikil áhrif.
Grímsey er hluti af sveitarfélaginu Akureyri. Óvíst er hvort pólitískur vilji sé fyrir hendi hjá Akureyrarbæ eða ríkinu fyrir sértæk úrræði en ýmsar leiðir hafa verið skoðaðar. Guðmundur Baldvin Guðmundsson, formaður bæjarráðs Akureyrar, staðfesti að senn yrði boðað til borgarafundar í eynni vegna málsins.
Einn viðmælandi blaðsins sagði miklar tilfinningar í málinu sem sumpart hefði yfir sér skáldsagnakenndan blæ.
Kvótakerfið, hrunið, síðari tíma kynferðisbrot og fleiri ógnir ættu þar í baráttu við sérstöðu byggðar við heimskautsbaug og þá staðreynd að um ræðir harðbýla eyju sem borið hefur einkenni dugnaðar heimamanna við sjósókn öldum saman. „Það á bara eftir að skrifa endinn. Enginn veit hver hann verður.“
Ljósmynd af akureyri.is