Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Eldhússystur í Kvennablaðinu

$
0
0

Systurnar Tobba og Stína (Þorbjörg Þórhildur Snorradóttir og Kristín Rannveig Snorradóttir) sem ættaðar eru úr Skagafirði hafa vakið athygli fyrir matarbloggið Eldhússystur. Þær munu nú ganga til liðs við höfundahóp Kvennablaðsins og leyfa lesendum að njóta uppskriftanna sem eru fjölbreyttar og aðgengilegar. Þær systur elda heimilismat þó af og til bregði fyrir flóknari matargerð og listrænum bakstri því þær eru algerlega bakstursóðar að eigin sögn. En við skulum kynnast ofurlítið þessum skemmtilegu systrum.

Stína er lögfræðingur og vinnur hjá bókaútgáfu í Stokkhólmi þar sem hún býr með með eiginmanni og þremur börnum. Tobba er hjúkrunarfræðingur og vinnur á hjúkrunar- og dvalarheimili aldraðra á Sauðárkróki þar sem hún býr ásamt kærasta og þremur börnum.

En hvað varð til þess að systurnar tóku höndum saman og byrjuðu að blogga um mat?

Eftir að hafa bakað í magni sem sennilega myndi sæma sér vel í hvaða atvinnubakaríi sem er og verið duglegar að prófa okkur áfram með nýjar uppskriftir af öðrum matarbloggum, þá sérstaklega bandarískum, datt okkur í hug að það gæti verið gaman að búa til okkar eigið blogg, bæði til að halda utan um tilraunamennskuna og til þess að leyfa öðrum að njóta bloggsins með okkur.

Bloggið ykkar er mikið lesið, voruð þið hissa á þessum miklu viðbrögðum?

Já, það má nú alveg segja það. Maður vonar auðvitað þegar maður leggur af stað með svona verkefni að það höfði til einhverra. Við erum rosalega ánægðar með hversu góð viðbrögð við höfum fengið frá lesendum okkar.

Hafið þið alltaf haft áhuga á matargerð?

Við höfum báðar lengi verið mjög áhugasamar um bakstur sérstaklega. Vorum báðar komnar í eldhúsið ungar að aldri og byrjaðar að baka. Sennilega má þakka móður okkar, Ágústu Eiríksdóttur, að miklu leyti fyrir þennan mikla áhuga en hún er einstaklega lagin í eldhúsinu. Móðuramma okkar heitin, Kristín, var einnig mjög afkastamikil og rak m.a. mötuneyti til langs tíma. Margar af okkar allra vinsælustu uppskriftum eru einmitt komnar frá ömmu og mömmu, sem okkur þykir alveg sérstaklega vænt um.

Nú hafið þið báðar verið búsettar í Svíþjóð þar sem Stína er enn. Gætir sænskra áhrifa í matargerð ykkar?

Já, það er eiginlega ekki hægt að segja annað. Stína er búin að búa í Svíþjóð í tæp sex ár og óhjákvæmilega verður maður fyrir talsverðum áhrifum, bæði úr umhverfinu en líka frá matarblöðum og bloggum hérna í Svíþjóð. Mikið af þeim mataruppskriftum sem má finna á síðunni eru sænskar og t.d. eru sennilega langflestar af uppskriftum á síðunni sem snúa að gerbakstri sænskar.

291

Matarljósmyndun er vandi og síðan ykkar er sérlega falleg ekki síst fyrir flottar matarmyndir. Hafið þið eitthvað lært í ljósmyndun og eigið þið einhver góð ráð til þeirra sem vilja taka betri matarmyndir?

Við erum ekkert lærðar en erum búnar að lesa okkur svolítið til um hvernig er best að taka myndir af mat. Okkur finnst báðum gaman að taka fallegar myndir og við leggjum svolítið upp úr því að hafa góðar myndir með uppskriftunum okkar. Þar skiptir samt eiginlega mestu að hafa góða myndavél sem við eigum báðar. Eiginlega er besta ráðið sem við getum gefið að nota aldrei flass þegar teknar eru matarmyndir, það heppnast aldrei vel. Og að reyna að taka myndir í dagsbirtu – sú birta er alltaf fallegust.

Við verðum að spyrja ykkur að lokum, hvernig líst ykkur á skagfirska efnahagssvæðið svokallaða?

Var það ekki þannig að öll vötn falla til Skagafjarðar? Nei annars, ætli það sé ekki best að segja bara ”no comment” hér ☺


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283