Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

3000 börn leyst undan hermennsku í Súdan

$
0
0

Fréttatilkynning frá Unicef

UNICEF og samstarfsaðilar hafa tryggt að um 3000 börn sem tekin höfðu verið inn í vopnaðan klofningshóp Lýðveldishers Suður-Súdan, verði leyst undan hermennsku á næstu vikum. Hér er um að ræða einn mesta fjölda barna sem sleppt hefur verið í einni aðgerð en fyrsta hópnum, 280 börnum, var sleppt í dag í austurhluta Suður-Súdan. Fleiri hópar munu fylgja í kjölfarið á næstu vikum.

Börnin voru hluti af hernaðarhópnum Kóbrunum og eru á aldrinum 11-17 ára gömul, flest þeirra drengir. Sumir þeirra hafa barist í rúm fjögur ár og enn fleiri hafa aldrei gengið í skóla.

Á síðasta ári voru yfir 12.000 börn, flest þeirra drengir, tekin inn í vopnaða hópa og notuð sem hermenn í Suður-Súdan.

Stuðningur og hjálp til að aðlagast samfélaginu að nýju

„Þessi börn hafa þurft að framkvæma og horfa upp á hluti sem ekkert barn ætti nokkurn tíman að upplifa,“ segir Jonathan Veitch, talsmaður UNICEF í Suður-Súdan. „Frelsun þúsunda barna krefst stórtækra aðgerða til að tryggja þeim þann stuðning og vernd sem þau þurfa til að endurbyggja líf sitt.”

UNICEF veitir börnunum heilsugæslu og sálrænan stuðning, auk nauðsynja á borð við mat, vatn og föt til undirbúa endurkomu þeirra til fjölskyldna sinna. Á næstu dögum munu börnin jafnframt geta hafið skólagöngu og starfsþjálfun.

UNICEF vinnur nú að því að hafa uppi á og sameina börnin fjölskyldum sínum. Það er erfitt verkefni í landi þar sem fleiri en 1 milljón barna hafa hrakist á vergang innan landsins eða flúið átökin yfir til nágrannaríkjanna.

Samfélögin þurfa líka hjálp

Samfélögum og þorpsbúum í heimkynnum barnanna verður veittur stuðningur og fræðsla til að koma í veg fyrir að þau verði fyrir aðkasti þegar þau koma til baka, en einnig til að draga úr líkum á að þau verði aftur tekin inn í hernaðarhópa.

„Að hjálpa börnunum að aðlagast samfélögum sínum á nýjan leik byggir á því að mæta þörfum þeirra strax, til skemmri og lengri tíma,“ bætir Veitch við.

Um UNICEF
UNICEF (Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna) hefur í tæpa sjö áratugi verið leiðandi í hjálparstarfi fyrir börn í heiminum. Við berjumst fyrir réttindum barna á heimsvísu og sinnum bæði langtímauppbyggingu og neyðaraðstoð. UNICEF treystir eingöngu á frjáls framlög og hefur að leiðarljósi þá bjargföstu trú að öll heimsins börn eigi rétt á heilsugæslu, menntun, jafnrétti og vernd. Við erum á vettvangi í yfir 190 löndum og leggjum áherslu á að ná til allra barna – hvar sem þau eru.
Fylgist með starfi Unicef á vef þeirra og á Facebook.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283