Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Glæpsamleg starfsemi smálánafyrirtækja

$
0
0

Ásmundur Friðriksson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, flutti harðorða ræðu um starfsemi smálánafyrirtækja á Alþingi í dag. Hann beindi orðum sínum til þingsins og Frosta Sigurjónssonar, formanns efnahags- og viðskiptanefndar, sérstaklega. Hér er ræða Ásmundar í heild sinni. Það er þakkarvert að þingmaðurinn skuli vekja máls á þessu böli.

Screen Shot 2015-02-05 at 04.52.52 f.h.

„Eiturlyfjasalar og smálánafyrirtæki setja marga í hættu sjálfsvígshugsana. Því miður ánetjast ótrúlegur fjöldi fólks smálánafyrirtækjum og vandi þeirra eykst eins og snjóbolti sem rennur niður fjallshlíð og skilur eftir sig slóð eyðileggingar.

Þannig hefur lífi fjölda fólks verið lagt í rúst þegar lánin hafa farið úr öllum böndum og hver mánaðamót eru tími örvæntingar þar sem laun duga ekki fyrir afborgun láns og eina leiðin er enn eitt okurlánið með glæpsamlegum kostnaði. Þessi bolti er mörgum ofviða og fólk brotnar.

Samkvæmt heimildum frá föður fórnarlambs fá þessi okurlánafyrirtæki leyfi skuldara sinna til að fara inn á alla bankareikninga þeirra og geta hvenær sem peningur kemur inn á reikning viðkomandi tekið þá út. Ekki stoðar að opna nýja reikninga því þeir eru opnir þessum glæpamönnum.

Fólk hefur lent inni á sjúkrahúsum mánuðum saman og aðstandendur taka eftir því að reglulega eru bankabækur tæmdar ef viðkomandi hefur lent í klóm þessara fyrirtækja og skuldirnar orðið þeim ofviða.  Gróði þessarar starfsemi, sem ég vil kalla glæpastarfsemi, er sagður gríðarlegur.

Helstu viðskiptavinir þessara fyrirtækja eru börn og unglingar, eiturlyfjasjúklingar og alkóhólistar, fátækt fólk og þeir sem eru á bótum. Veikustu bræður okkar og systur í samfélaginu.

Foreldri hafði samband við mig, barn þess hafði skilið eftir bréf til foreldra sinna og tilkynnt þeim að lífið væri ekki lengur þess virði að berjast áfram við óvinnandi skuldafjall sem hlaðist hafði upp hjá smálánafyrirtæki.

Með snarræði var lífi bjargað og skuldirnar greiddar af fjölskyldunni.

Er það svo að við Íslendingar viljum að svona starfsemi sé leyfð í landinu?

Ég vil því spyrja háttvirtan þingmann, Frosta Sigurjónsson, formann efnahags- og viðskiptanefndar, hvað hefur verið gert til að koma í veg fyrir okurlánastarfsemi smálánafyrirtækja og hvort starfsemi þeirra samræmist lögum um góða viðskiptahætti í landinu.“


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283