Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Leigjendur óskast

$
0
0

Hvað í auglýsingunni hér að ofan er skáldskapur?

Flestir sem þekkja til íslenskra húsnæðismála afgreiða auglýsinguna að ofan sem skáldskap og fjarstæðu. Eini skáldskapurinn í auglýsingunni er nafn leigufyrirtækisins og persónan sem vísað er til. Verðið og íbúðirnar eru hins vegar enginn skáldskapur.

Upplýsingarnar eru fengnar frá heimasíðu Hultsfred Bostader í Smálöndum Svíþjóðar, steinsnar frá heimaslóðum Emils í Lönneberga.

Hultsfred bostader er dæmigert sænskt leigufélag í eigu viðkomandi sveitarfélags sem á og rekur leiguíbúðir sem þjónustu fyrir íbúa svæðisins. Sveitarfélagið leggur þegnum sínum þessa þjónustu til á kostnaðarverði, rétt eins og aðrar lífsnauðsynjar á borð við vatn, orku, vegi, skóla o.s.frv.

Íbúðirnar standa öllum til boða, óháð tekjum eða þjóðfélagsstöðu. Í þeim býr þverskurður samfélagsins og þeir sem vilja geta búið í viðkomandi íbúð alla ævi ef það hentar.

Uppsagnarfrestur er þrír mánuðir, og innifalið í leigu er allt viðhald á eðlilegu sliti, snjómokstur, sláttur á grasi og þar fram eftir götunum. Íbúðir þessar eru mjög vel hannaðar og fermetrar nýtast mjög vel.

Hluti af íbúðunum er frá milljónaverkefninu (s. miljonprogrammet) sænska frá árunum 1965 til 1975 þegar byggðar voru yfir milljón leiguíbúðir um alla Svíþjóð.

Milljónaverkefnið var þverpólitískt átak til að stemma stigu við þáverandi ófremdarástandi á sænskum húsnæðismarkaði. Allar götur síðan hefur sænskur almenningur búið að þessu framsýna framtaki. Hultsfred bostader er gott dæmi um það.

Á Íslandi er Reykjanesbær andhverfa Hultsfred í húsnæðismálum. Þar í bæ má finna birtingarmynd íslenskrar húsnæðisstefnu undanfarinna áratuga. Og efnahagsstefnu líka.

Manngerða martröðin í Reykjanesbæ er hnotskurnardæmi um hvernig bankar,lífeyrissjóðir og verktakar settust við stýrið í Thatcher- og Reagan-væðingu íslenskra húsnæðismála.

Reykjanesbær er stærsta pólitíska útilistasafn í húsnæðismálum Norðurlanda. Nálægðin við flugvöllinn er óplægður akur fyrir ljósmyndatúrisma.

Hægt væri að skipuleggja ferðir til „Detroit Norðursins“ en Detroit er sívinsæll viðkomustaður þeirra sem taka myndir af tómum húsum.

Um það bil sami mannfjöldi býr í Reykjanesbæ og Hultsfred. Staða sveitarfélaganna er svipuð í atvinnumálum, menntun og þjónustu.

Í samanburði við Hultsfred vaknar spurningin: Er ástandið í Reykjanesbæ íslenskt náttúrulögmál?

Viljum við Íslendingar hafa þetta svona?

Guðmundur Guðmundsson skrifaði. Höfundur er sjómaður og áhugamaður um launa- og húsnæðismál íslenskrar alþýðu.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283