Á UTmessunni eru allir velkomnir að koma og sjá það helsta sem er að gerast í tölvu- og tæknigeiranum. Laugardaginn 7. febrúar opnar sýning fyrir alla fjölskylduna í Hörpunni. Þá opnar tæknigeirinn uppá gátt og býður öllum að koma og sjá það helsta sem er að gerast í tæknigeiranum í dag.
KL. 10-17: Ýmis undur upplýsingatækninnar til sýnis á svæði Háskólans í Reykjavík – Norðurljósasal
Vísindamenn við tölvunarfræðideild verða með gervigreindarhorn þar sem þeir útskýra og sýna afrakstur rannsókna sinna, heilbrigðistæknisvið sýnir 3D útprentaðan heila, hjarta, bein og fleira, boðið verður upp á þátttöku í skemmtilegum mynstraleik og sýnd verða sýnishorn úr tölvuleikjum sem nemendur þróa á þremur vikum. Nemendur tækni- og verkfræðideildar sýna vatnaflygil, kafbát og eldflaugina Mjölni.
Kl. 15: Tölvutætingur – keppni í að taka tölvu í sundur og setja hana aftur saman – Norðurljósasal
Á Tölvutætingi fá keppendur vélabúnað í bútum, þeir eiga að setja hann saman og loks koma tölvunni í gang. Sá þátttakandi sem er fyrstur til að kveikja á tölvunni vinnur. Keppnin er opin öllum áhugasömum tölvutæturum á aldrinum 15-25 ára. Tölvutætingurinn er samstarfsverkefni Promennt og nemendafélagsins /sys/tur frá Háskólanum í Reykjavík. Bás Promennt er á 1. hæð og bás /sys/tra er hjá Háskólanum í Reykjavík í Norðurljósasal. Í básunum er hægt að fikta í tölvum og fylgihlutum, tæta og setja saman. Leiðbeinendur eru á báðum básum sem fræða gesti um vélbúnað tölvunnar og aðstoða við fiktið.
Kl. 13:10 – 13:30 Nemendur tala um tölvuleikjagerð – Kaldalón
Eiríkur Orri Ólafsson og Kári Halldórsson, nemar við tölvunarfræðideild HR, fjalla um hugmyndavinnuna á bak við tölvuleikjagerð og tilfinninguna í tölvuspilinu.