Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Færeyski listamaðurinn Finleif Mortensen í Gallerí Fold

$
0
0

Færeyski listamaðurinn Finleif Mortensen ólst upp í þorpinu Argir rétt utan við Þórshöfn.

Frumraun hans á myndlistarsviðinu var árið 1985 á Olavsøku-sýningunni þar sem valdir listamenn sýna í Færeyjum. Síðan þá hefur hann tekið þátt í fjölmörgum samsýningum og haldið einkasýningar í galleríum og listasöfnum í Færeyjum, Danmörku og á Íslandi.

Hin einstaka færeyska náttúru setur svip sinn á myndlist Finleifs Mortensen. Í myndum hans eru hinn sérstæði blágræni litur áberandi og í verkum hans má skynja sérstaka birtu og leik á milli andstæðra litatóna.

Eins og impressionistarnir leitast Finleif Mortensen við að leysa upp skýrar útlínur. Myndir hans eru óhlutbundnar en þó sterkar náttúrustemmur þar sem þó má sjá móta fyrir landslagi og húsaþyrpingum.

Finleif opnaði sýninguna í gær í Gallerí Fold á Safnanótt. Gallerí Fold er opið frá 11 – 16 og sunnudag frá 14 – 16. Þetta er önnur einkasýning Finleifs í galleríinu en síðast hélt hann þar sýningu árið 2012. Verkum hans hefur verið vel tekið hér á landi.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283