Flest okkar sem erum í samböndum deilum fjármálunum að hluta eða að miklu leyti með maka okkar eða sambýlingi. Við tökum þátt í að greiða reikninga, deilum innkaupum til heimilis, svo er það eldsneyti á bílinn, föt á börnin, afþreying og alls kyns önnur vara og þjónusta sem tengist okkar daglega lífi.
Í hverju einasta sambandi taka fjármálin á sig einhvers konar mynd sem þróast eftir því sem líður á sambandið. Í upphafi þegar fólk er að kynnast eru fjármálin eðlilega aðskilin. En eftir því sem tíminn líður fara sameiginlegar daglegar athafnir að aukast og taka á sig mynd samvinnu.
Við förum að deila matarpeningum, greiða fyrir hvort annað og styðja hvort annað. Síðan þegar sambúð hefst taka fjármál heimilisins á sig einhvers konar form. Allt frá því að vera aðskilin, fullkomlega skipulögð eða alger óvissa.
Flest ef ekki öll sambönd ganga í gegnum einhverja erfiðleika í fjármálum. Sum pör rétta sig af sjálf en önnur flækjast því miður í vef fjárhagsvanda.
Heilbrigð sambönd byggja á samvinnu. Fjármálafeimni og falið stríð við skuldir okkar grefur undan heilbrigðum samskiptum við maka okkar. Við fyllumst kvíða og andvökunóttum fjölgar. Makinn jafnvel spyr hvort eitthvað sé að en við getum ekkert sagt. Við höldum áfram að reyna að laga vandann og spenna myndast í samskiptum.
Fjárhagslegt álag í samböndum er algengt. Mörg rifrildi og ósætti í samböndum eru vegna fjármála og fjárhagsvandi eða fjárhagslegur óheiðarleiki er algeng ástæða skilnaða.
Samskipti para eru oft flækt í þessum fjárhagslega óheiðarleika. Lygi sem ein og sér skaðar ekki sambandið en getur byggt upp spennu sem síðar skaðar sambandið. Kannanir sýna að einn af hverjum þremur sem eiga sameiginleg fjármál með maka eða sambýlingi hafa logið til um fjármálin og falið hluta þeirra fyrir hinum aðilanum. Flestir af þessum einstaklingum telja að þetta hafi skaðað sambandið.
Dæmi um eina slíka lygi er þegar við svörum „Já, ég er búin/n að greiða þennan reikning“ en sannleikurinn er að við gleymdum því eða frestuðum því of lengi.
Önnur algeng lygi er þegar við segjum „Já, við höfum efni á þessu“ en sannleikurinn er að við munum finna leiðir til að redda þessu síðar.
Enn ein lygin er að „mínir peningar eru þínir peningar“. Þrátt fyrir þetta viðhorf þá felur fólk í mörgum tilfellum ýmis konar kaup og eyðslu fyrir maka sínum. Þessir einstaklingar eiga falinn bankareikning, kreditkort eða felustað fyrir reiðufé sem það notar í sjálfa sig án vitundar maka.
Í grunninn er þessi lygi og feluleikir afleiðing af okkar eigin óöryggi. Fjármálin sjálf eru einföld því þau eru bara tölur á blaði. En þegar við eigum erfitt með að ná endum saman eða skuldir vaxa eins og illgresi þá fara tilfinningar okkar að hafa áhrif. Ótti við álit makans og ótti við höfnun vegna óreiðu í fjármálum er oft nóg til þess að við náum ekki að taka til í fjármálunum.
Við jafnvel gerum illt verra í viðleitni okkar til að lagfæra vandann um leið og við felum ástandið fyrir makanum. Lausnin felst í að tala saman og skoða hegðun okkar í fjármálum og viðurkenna það fyrir maka okkar og þeim sem við viljum treysta. Skoða hvernig þið vinnið ykkur saman út úr vandanum.
Ef þú ert í þeim sporum að geta ekki sest niður með maka þínum og unnið á fjármálavanda ykkar þá bíður Skuldlaus.is upp á pararáðgjöf þar sem sambúðarfólk og hjón fá tækifæri til þess að yfirstíga hindranir saman og samstilla fjármálin þannig að þau virki með þeim en ekki gegn þeim.
Ekki láta fjármálin standa í vegi fyrir hamingjunni.