Mannréttindalögfræðingurinn Damon Barret mun halda fyrirlestur um mannréttindabrot í skugga fíknistríðsins í stofu 102 á Háskólatorgi, fimmtudaginn 19. febrúar í boði Snarrótarinnar. Kvennablaðið hafði samband við Damon í tilefni þess til þess að ræða um efni fyrirlestursins og um mannréttindi barna í fíknistríðinu svokallaða.
Damon kveðst ætla að leggja sérstaka áherslu á tvö atriði, eitt heldur dapurlegt og annað sem er meira upplífgandi:
„Það sem er dapurlegt snýr að því að hvernig stríðið gegn fíkniefnum er í raun alþjóðleg árás á mannréttindi og ég mun ræða það í þaula hversu hörmulegt ástandið raunverulega er. Ég mun útskýra að þessi ítrekuðu mannréttindabrot eru hluti af grunnstoðum alþjóðlega kerfisins sem hefur verið skapað til þess að heyja þetta stríð, frekar en óheppileg aukaverkun þess eða að hægt sé að kenna nokkrum „týndum ríkjum“ um ástandið. Það sem upplífgandi er mun snúa að löndum eins og Íslandi sem hafa tækifæri til þess að fara öðruvísi að.“
Okkur langaði sérstaklega til að spyrja Damon út í áhrif fíknistríðsins á mannréttindi barna og því spurðum við hann hvað hann teldi stærstu ógnina við mannréttindi barna sem nota vímuefni.
„Þetta snýst allt um samhengi.“ Segir hann. „Spurningin er raunverulega þessi: Hverjar eru stærstu ógnirnar, í fleirtölu, fyrir þessi börn, sem nota þessi vímuefni, á þennan hátt, í þessum kringumstæðum? Og fyrsta svarið við því væri að spyrja þau. Ég held að stefnan myndi batna ef við gerðum miklu meira af því.“
En hvað myndi Damon segja að væru verstu áhrif núverandi vímuefnastefnu á mannréttindi barna og unglinga?
„Við gætum rætt óteljandi dæmi um ofbeldi gegn börnum, foreldrum og jafnvel heilum samfélögum. En öfgafyllstu dæmin leyfa okkur stundum að beina athyglinni annað en hún á heima. Ég legg til að við lítum okkur nær og skoðum siðleysið og rökleysið að baki þess sem við tökum sem sjálfsögðum hlut. Hversu margar fjölskyldur hafa verið þjakaðar með sakarskrám fyrir friðsama vímuefnanotkun?“
„Ég er ekki að tala um fangelsisvist, ég er að tala um sakarskrá, þetta er oft hundsað eins og það sé ekki nógu alvarlegt. En sakarskrá veldur skaða fyrir lífstíð. Spurðu hvaða félagsráðgjafa sem er ef skömmin og útskúfunin sem fylgir sakarskrá hafi hjálpað nokkurri manneskju eða fjölskyldu í þeirra umsjá. Spurðu þá sem hafa mál á sakaskránni hvað slíkt þýddi fyrir starfs- og lífsmöguleika þeirra. Skoðaðu síðan gögnin um hvernig refsiréttarkerfinu hefur gjörsamlega mistekist að áorka jákvæðri breytingu í vímuefnamálum. Það er skammarlegt og uggvænlegt hversu hversdagsleg þessi hegðun yfirvalda er orðin.“
Damon Barrett er fyrrverandi aðstoðarframkvæmdastjóri Harm Reduction International (IHRA) og stofnandi og framkvæmdastjóri International Centre on Human Rights and Drug Policy (ICHRDP), sem starfar innan vébanda hins virta Mannréttindaseturs Háskólans í Essex. Hann hefur birt fjölda greina og bókarkafla, jafnt í ritrýndum tímaritum sem á útbreiddum vefmiðlum. Einnig situr hann í ritnefnd International Journal of Drug Policy og ritstýrir tímaritinu Human Rights and Drugs. Damon hefur unnið fyrir ýmsar alþjóðastofnanir, þar á meðal alþjóðlegu skaðminnkunarsamtökin IHRA, Alþjóðaheilbrigðismálastofnunina og Sameinuðu þjóðirnar.
Fyrirlestur Damons verður haldin í stofu 102 á Háskólatorgi, fimmtudaginn 19. febrúar klukkan 16.30. Fundarstjóri er Dr. Helgi Gunnarsson prófessor í félagsfræði. Fyrirlesturinn er ókeypis og öllum opinn. Nánari upplýsingar má nálgast hér.